Síða 1 af 1

Þekkið þið náungann sem lét 1kz-t í 99 bláann Hilux?

Posted: 25.nóv 2012, 16:21
frá Hfsd037
Mig vantar svo að vita hvernig hann gékk frá snúningsmælinum, hef lesið einhverja þræði á netinu og hef bara fundið hvað það er mikið vesen að koma snúningsmælinum inn en ekkert sem hjálpar mér neitt.
Einnig ef þið eigið eitthvað pdf skjal sem inniheldur Pin Plug þá væri það vel þegið :)

Re: Þekkið þið náungann sem lét 1kz-t í 99 bláann Hilux?

Posted: 25.nóv 2012, 16:25
frá Hfsd037
Mig minnir að þessi Hilux komi frá Búðardal og hafi síðan farið á Akranes

Re: Þekkið þið náungann sem lét 1kz-t í 99 bláann Hilux?

Posted: 25.nóv 2012, 16:36
frá StefánDal
Hann heitir Vilhjálmur Arnórsson og kallar sig Refur hérna inni. Hann hefur rosalega gaman að því að fá svona símtöl og ræða um allt sem tengist Toyotum!

Re: Þekkið þið náungann sem lét 1kz-t í 99 bláann Hilux?

Posted: 25.nóv 2012, 16:41
frá Hfsd037
StefánDal wrote:Hann heitir Vilhjálmur Arnórsson og kallar sig Refur hérna inni. Hann hefur rosalega gaman að því að fá svona símtöl og ræða um allt sem tengist Toyotum!


Takk kærlega fyrir :)

Re: Þekkið þið náungann sem lét 1kz-t í 99 bláann Hilux?

Posted: 25.nóv 2012, 17:11
frá jeepson
Er alt að smella saman hjá þér með 3.0l vélina?? Ég ferðaðist aðeins með einum frá Ísafirði sem að er með gamlann DC með svona 3.0l vél. Hann sagði lúxinn kæmist loksins áfram. Svo er hann með lækkuð hlutföll í lága kassanum skylst mér þannig að þegar að hann er kominn í loloið þá varla hreyfist hann. Alveg ótrúlegt hvað hann getur farið hægt á þessu apparati sínu. Þessi bíll virðist drífa svakalega vel hjá honum og alt vel smíðað.

Re: Þekkið þið náungann sem lét 1kz-t í 99 bláann Hilux?

Posted: 26.nóv 2012, 00:38
frá Hfsd037
jeepson wrote:Er alt að smella saman hjá þér með 3.0l vélina?? Ég ferðaðist aðeins með einum frá Ísafirði sem að er með gamlann DC með svona 3.0l vél. Hann sagði lúxinn kæmist loksins áfram. Svo er hann með lækkuð hlutföll í lága kassanum skylst mér þannig að þegar að hann er kominn í loloið þá varla hreyfist hann. Alveg ótrúlegt hvað hann getur farið hægt á þessu apparati sínu. Þessi bíll virðist drífa svakalega vel hjá honum og alt vel smíðað.



Já þetta er allt að smella, það eina sem er eftir er snúningsmælirinn og intercoolerinn, ég er með intercoolerinn í bílnum en á bara eftir að breyta hosunum frá túrbínu og frá inntakinu að intercoolernum.

En mikið rooosalega er hann orðinn skemmtilegur, þetta alveg sópast áfram og gefur lítið eftir upp brattar brekkur td eins og upp kambana, mér finnst eyðslan meira að segja bara mjög svipuð og áður.
Ég er ekkert annað en sáttur :)