Síða 1 af 1

Hægt að gera restin sjálfur ?

Posted: 06.nóv 2012, 16:25
frá Eggert
Góðan daginn.

Nú er ég kominn með Jeppann aftur á götuna eftir viðgerðir 
Ég var oft að spyrjast fyrir hér hvað gat verið að og eftir ábendingum frá ykkur þá kom í ljós hvað var að.
Stimpil nr.1 var óþeyttur.

Það sem ég er nú búinn að gera fyrir elsku jeppann 2012 er eftir farandi.

Vél tekinn í gegn. Skipt um allar legur í vél, alla stimpla, yfirfarið hedd, ný pakkning, Ný altraktor, yfirfarnir spíssa, ný glóðakertið , ný túrbína, nýtt pickupp rör.
Nýtt púst undir allan bilin og fleira..... ( Allt gert á verkstæði )

Það eina sem er eftir að gera núna er : Spindil kúlur á framan, hjöruhlíð ( komið slag ) og pakkningar í dempara á framan.

Mín spurning er.. Er mikið mál að skipta þessu sem ég þarf að lagar í viðbót ? Eða er þetta litið mál ?

Re: Hægt að gera restin sjálfur ?

Posted: 06.nóv 2012, 16:34
frá eythor6
Það er ekkert mál að skipta þessu út sjálfur, mundi spara aurana og dunda þér inni í blíðunni ;)

Re: Hægt að gera restin sjálfur ?

Posted: 06.nóv 2012, 16:48
frá ellisnorra
Já er veskið ekki orðið alveg galtómt? Þetta hafa verið þónokkrir hundraðþúsundkallar heyrist mér.

Þetta fer bara eftir þinni færni, það er ekkert mál að gera það sem maður kann en getur verið stórmál ef maður kann það ekki. Þetta krefst ákveðinna handtaka og þarf að vera gert rétt og ákveðin atriði sem þarf að hafa í huga.
Dundaðu þér í þessu sjálfur ef þú hefur þekkingu í það eða einhvern nálægan eða með þér sem kann til verka.

Re: Hægt að gera restin sjálfur ?

Posted: 09.nóv 2012, 15:27
frá Eggert
Jú þetta kostaði nú eitthvað 
Reiknaði út kostnaðurinn er kominn í 900.000 +
Enn nú er hann líka eins og nýr og besta er að ég er með kvittun fyrir öllu sem var gert.

Ég mun fara í að reyna að gera þetta sjálfur þar sem veskið er orði galtómt.. hehe.

Hvar er best að komast í lyft og geta dunda sér ?
Veit að það er eitt verkstæði í hafnafirði sem er með þannig að þú getur mætt og borga fyrir pláss á golfi eða lyftu.
Veit einhver um einhverja aðra aðstöðu sem er að bjóða svona ?

Re: Hægt að gera restin sjálfur ?

Posted: 09.nóv 2012, 15:53
frá biturk
komdu þér bara á gólf, það er ekkert mál að gera þetta með búkka undir á gólfi, ég myndi jafnvel bara googla smá um þessa hluti sem þú ert að fara að skipta um, svona "how to" dæmi og reina að skoða sem mest af myndböndum, ég hef til dæmis gert alla þessa hluti úti í kraftgalla með neiðartjakk og spítukubba útá gangstétt heima hjá mér

Re: Hægt að gera restin sjálfur ?

Posted: 12.nóv 2012, 09:31
frá Eggert
Ég ætla að gera það.
Prófa að fara að vinna í þessu. Ætlaði mér að reyna að fara ferð næstu helgi svo ég verð vist að fara að vinna í þessu 
Reyndi að finna eitthvað googla þetta enn fann litið um þetta.