Stolið Garmin 276C

User avatar

Höfundur þráðar
eythor6
Innlegg: 128
Skráður: 15.feb 2011, 14:13
Fullt nafn: Eyþór Ingi Ólafsson

Re: Stolið Garmin 276C

Postfrá eythor6 » 27.okt 2012, 15:57

Litla dýrið



User avatar

jeepson
Innlegg: 3176
Skráður: 31.jan 2010, 16:02
Fullt nafn: Gísli J Gíslason
Bíltegund: Nissan patrol
Staðsetning: Þarna fyrir austan.

Re: Stolið Garmin 276C

Postfrá jeepson » 27.okt 2012, 19:09

Altaf fúlt þegar að það er stolið af manni. Maður skilur ekki fólk geti bara látið eigur mans í friði.
Kv. Gísli

Nissan Patrol 1992 6.5 detroit diesel 46" Trölli
Isuzu Trooper 2003 3.1 TDI[b]37"/b] vinnu og veiði bíllinn
Audi Q7 3.0 TDI frúar vagninn

User avatar

Hagalín
Innlegg: 760
Skráður: 01.feb 2010, 07:44
Fullt nafn: Kristján Hagalín Guðjónsson
Staðsetning: Akranes
Hafa samband:

Re: Stolið Garmin 276C

Postfrá Hagalín » 27.okt 2012, 19:19

Djöfull er ég ánægður með þig að setja nafnið hans hér inn ef hann sér ekki að sér.....
Kristján Hagalín
Ford F-250 Lariat 46"
Nissan Patrol 201 44" - Seldur
Nissan Terrano2 2001 36" - Seldur
Toyota Hilux 2,4Turbo 38" - Seldur

E-1870

User avatar

Hfsd037
Innlegg: 968
Skráður: 20.aug 2010, 08:26
Fullt nafn: Hlynur Freyr Sigurðsson
Bíltegund: Toyota Hilux 3.0

Re: Stolið Garmin 276C

Postfrá Hfsd037 » 27.okt 2012, 20:03

Hvernig er það, er ekki hægt að staðsetja öll Garmin GPS tæki?
þeas ef þjófurinn kveikjir á því sjá þeir hjá Garmin ekki hvar tækið er staðsett?
Toyota Hilux D/C '00 38" Í notkun
Toyota Hilux V6 X/C '94 38" seldur
Toyota Hilux V6 X/C '92 33" seldur
Chevy S-10 Single Cab '90 4.3 seldur

User avatar

-Hjalti-
Innlegg: 1635
Skráður: 07.feb 2010, 21:22
Fullt nafn: Hjalti Sigurðsson

Re: Stolið Garmin 276C

Postfrá -Hjalti- » 27.okt 2012, 20:04

Hfsd037 wrote:Hvernig er það, er ekki hægt að staðsetja öll Garmin GPS tæki?
þeas ef þjófurinn kveikjir á því sjá þeir hjá Garmin ekki hvar tækið er staðsett?


neibb , djöfull væri það samt sniðugt
Toyota 44"runner
Arctic cat M8000 162"

User avatar

ellisnorra
Póststjóri
Innlegg: 2809
Skráður: 06.feb 2010, 10:43
Fullt nafn: Elmar Snorrason (Elli)
Bíltegund: Patrol
Staðsetning: Travitsenfirkopfendorf

Re: Stolið Garmin 276C

Postfrá ellisnorra » 27.okt 2012, 20:05

Algjörlega sammála síðustu ræðumönnum, og bæti um betur og skora á þig að setja mynd af honum líka, sértu alveg 100% viss í þinni sök. Menn velja það sjálfir að leggja mannorðið að veði þegar þeir stela! Það eru þeir/við sem svæfa svona mál sem eru rolurnar!

En ég endurtek, vertu viss (ef þú ert það ekki nú þegar) um að þetta sé rétti maðurinn fyrst.
http://www.jeppafelgur.is/

User avatar

jeepson
Innlegg: 3176
Skráður: 31.jan 2010, 16:02
Fullt nafn: Gísli J Gíslason
Bíltegund: Nissan patrol
Staðsetning: Þarna fyrir austan.

Re: Stolið Garmin 276C

Postfrá jeepson » 27.okt 2012, 23:06

Ég styð það að birta mynd af viðkomandi og nafn. Og helst bara símanr og heimilisfang líka.
Kv. Gísli

Nissan Patrol 1992 6.5 detroit diesel 46" Trölli
Isuzu Trooper 2003 3.1 TDI[b]37"/b] vinnu og veiði bíllinn
Audi Q7 3.0 TDI frúar vagninn


ursus
Innlegg: 42
Skráður: 17.jan 2011, 18:57
Fullt nafn: Sæmundur Oddsteinsson

Re: Stolið Garmin 276C

Postfrá ursus » 28.okt 2012, 00:03

'Ataksmælirinn og felgutopparnir er auglýstir á bland.is undir verkfæri.

User avatar

Stebbi
Innlegg: 2098
Skráður: 31.jan 2010, 22:59
Fullt nafn: Stefán Stefánsson
Bíltegund: Eitthvað blátt
Staðsetning: Hafnarfjörður

Re: Stolið Garmin 276C

Postfrá Stebbi » 28.okt 2012, 00:58

ursus wrote:'Ataksmælirinn og felgutopparnir er auglýstir á bland.is undir verkfæri.


Þetta virðist vera einhver stelpa í hafnarfirði sem er að auglýsa þetta og samkvæmt símanúmerinu er hún bifvélavirki. Reiknum með því að það séu til fleiri en eitt svona sett áður en einhver verður krossfestur.
Hilux DC 2.4 dísel úrbræddur
Jeep Grand Cherokee 4.7 Seldur
MMC Pajero 2.5TDI 38" Seldur
Ford Econoline 44"

User avatar

Hfsd037
Innlegg: 968
Skráður: 20.aug 2010, 08:26
Fullt nafn: Hlynur Freyr Sigurðsson
Bíltegund: Toyota Hilux 3.0

Re: Stolið Garmin 276C

Postfrá Hfsd037 » 28.okt 2012, 02:38

Þessi gaur er greinilega fullur af skít, hvernig datt þér í hug að gefa honum færi á því að stinga þig svona í bakið?
það er allavega mjög auðvelt að komast hjá því að vera stungin í bakið af svona liði, einfaldlega með því að vanda valið með fólkið í kringum sig :)

Ef tækinu mínu yrði stolið af mér og ég vissi hver það væri þá mundi ég beita miklum þrýsting á hann svo hann myndi skila tækinu aftur.
Toyota Hilux D/C '00 38" Í notkun
Toyota Hilux V6 X/C '94 38" seldur
Toyota Hilux V6 X/C '92 33" seldur
Chevy S-10 Single Cab '90 4.3 seldur


flækingur
Innlegg: 110
Skráður: 04.okt 2011, 18:46
Fullt nafn: þórólfur Almarsson

Re: Stolið Garmin 276C

Postfrá flækingur » 28.okt 2012, 11:36

er ekki soldið skrítið ef maðurinn vil ekki gefa þér upp símanúnerið hjá tengdasyninum þegar hann er búinn að vara við honum sjálfur. bara skella nafni beggja inn svo að aðrir fari aekki að falla í þá gryfju að legja með þessum tengdaföður sem er greynilega að verja tengdadýrið....


olei
Innlegg: 815
Skráður: 30.apr 2011, 01:41
Fullt nafn: Ólafur Eiríksson

Re: Stolið Garmin 276C

Postfrá olei » 28.okt 2012, 12:23

Þú ert að lýsa einstaklingi sem er að einhverju marki veruleikafyrrtur. Þeir ganga um ljúgandi en ljúga mest að sjálfum sér og búa til nýjan veruleika sem hentar þeim best hverju sinni með nýjustu lygasögunni. Viðkomandi mun fara létt með að ljúga því að sjálfum sér að mannorð hans sé í fínu lagi þó að þú hengir hann út á snúru hér á spjallinu.


GunnarA
Innlegg: 19
Skráður: 11.sep 2012, 14:47
Fullt nafn: Gunnar A Birgisson
Bíltegund: Pajero 38"

Re: Stolið Garmin 276C

Postfrá GunnarA » 28.okt 2012, 14:50

ef nafnið á honum byrjar á R hafðu samband ég er að leita af einum sem stal frá mér


villi58
Innlegg: 2134
Skráður: 10.maí 2011, 10:51
Fullt nafn: Vilhjálmur Reynisson
Bíltegund: Toyota Hilux
Staðsetning: Ittoqqortoormiit

Re: Stolið Garmin 276C

Postfrá villi58 » 28.okt 2012, 14:53

Er ekki best að láta lögregluna taka hann í gegn ?


flækingur
Innlegg: 110
Skráður: 04.okt 2011, 18:46
Fullt nafn: þórólfur Almarsson

Re: Stolið Garmin 276C

Postfrá flækingur » 28.okt 2012, 18:00

það veit ég af reynslu að löggan gerir ekkert þó maður leggji allt upp í hendurnar á þeim. Hin leiðin er betri ef huún gengur upp.

User avatar

jeepson
Innlegg: 3176
Skráður: 31.jan 2010, 16:02
Fullt nafn: Gísli J Gíslason
Bíltegund: Nissan patrol
Staðsetning: Þarna fyrir austan.

Re: Stolið Garmin 276C

Postfrá jeepson » 29.okt 2012, 18:18

svopni wrote:Jæja það styttist. Spurning um að hafa þetta spennandi og byrta fyrsta stafinn í nafninu á miðvikudaginn!


Gerðu þetta bara en meira spennandi og settu inn nafn: Kennitölu: hemilisfang og helst bankanr :)
Kv. Gísli

Nissan Patrol 1992 6.5 detroit diesel 46" Trölli
Isuzu Trooper 2003 3.1 TDI[b]37"/b] vinnu og veiði bíllinn
Audi Q7 3.0 TDI frúar vagninn

User avatar

Magni
Innlegg: 474
Skráður: 11.aug 2011, 15:42
Fullt nafn: Magni Helgason
Bíltegund: Nissan Patrol

Re: Stolið Garmin 276C

Postfrá Magni » 29.okt 2012, 18:20

Mér finnst þessi þráður flokkast undir neteinelti. Hann á ekki heima á þessu spjalli, eða a.m.k. á þetta ekki að vera opinn þráður. Það er eitt að tilkynna um þjófnað og skora á viðkomandi að skila því sem tekið var, en annað að lýsa viðkomandi nákvæmlega á opnum þræði á netinu og hella yfir hann svívirðingum og hóta nafnbirtingu. Aðrir sem þekkja ekki til þessa máls eru svo að taka undir þetta. Það er svo að menn eru saklausir uns sekt þeirra er sönnuð og af innleggi þínu að dæma geturðu hvorki sannað að hann hafi stolið þessu tæki, né sýnt fram á það með neinum hætti. Ég skora á þig Svopni, að útkljá þetta annarsstaðar en hér inni. Ég skil fullkomlega gremju þína yfir þessu máli, en þetta er of langt gengið.
Ég skora líka hér með á stjórnendur þessa spjalls að læsa þessum þræði.
- Nissan Patrol 2008 L86 V8 44AT -


kjartanbj
Innlegg: 899
Skráður: 06.jún 2011, 18:30
Fullt nafn: kjartan Björnsson
Bíltegund: Ford Ranger
Staðsetning: Reykjavík

Re: Stolið Garmin 276C

Postfrá kjartanbj » 29.okt 2012, 20:44

mér finnst bara ekkert að því að vara aðra við svona mönnum.. sérstaklega þegar honum er gefinn langur frestur til þess að gera hreint fyrir sínum dyrum áður
Ford Ranger 91 351w 39.5" -Seldur-
Dodge Ram 2500 5.9 Cummins -Seldur-
-Seldur- Land cruiser 80 VX 44" -Seldur-

User avatar

Magni
Innlegg: 474
Skráður: 11.aug 2011, 15:42
Fullt nafn: Magni Helgason
Bíltegund: Nissan Patrol

Re: Stolið Garmin 276C

Postfrá Magni » 29.okt 2012, 23:10

kjartanbj wrote:mér finnst bara ekkert að því að vara aðra við svona mönnum.. sérstaklega þegar honum er gefinn langur frestur til þess að gera hreint fyrir sínum dyrum áður


Já það er ekkert að því að skora á menn að skila einhverju. En þessi þráður er löngu kominn út fyrir þau mörk. Þráðurinn hófst kannski með áskorun en hefur farið út í persónulegar árásir og einelti sem á ekki að viðgangast á opinberum vef. Þú ættir endilega að lesa allan þráðinn. Og það er hreinlega rangt að birta nafn einhvers sem ekki er víst að sé sekur.
- Nissan Patrol 2008 L86 V8 44AT -

User avatar

Gulli J
Innlegg: 168
Skráður: 22.mar 2010, 20:25
Fullt nafn: Guðlaugur Jónasson

Re: Stolið Garmin 276C

Postfrá Gulli J » 29.okt 2012, 23:35

Svona þráður á fullan rétt á sér, um að gera að vara aðra við skíthælum, því annars er ekkert sem stoppar þá.
Guðlaugur Jónasson
Jeep Grand Cherokee 2005 5,7L Hemi 33" Jeep 1
Jeep Grand Cherokee 1998 5,7L Hemi 46" Jeep 2

Enda sagði presturinn, ef það eru bílar í Himnaríki þá eru það Jeep Grand Cherokee.

User avatar

Tómas Þröstur
Innlegg: 330
Skráður: 19.mar 2010, 10:03
Fullt nafn: Tómas Þröstur Rögnvaldsson

Re: Stolið Garmin 276C

Postfrá Tómas Þröstur » 30.okt 2012, 09:10

Fæst orð bera minnsta ábyrð - nafnbirtur viðkomandi gæti sótt skaðabótamál ef ekkert sannast á hann. Það er ömurlegt að lenda í þjófnaðarmálum. Veit af mjög nýlegu dæmi á Akureyri. Brotist inn í íbúð og raftækjum stolið m.a. flottum epla snjallsíma. Eigandinn var með forit í símanum svo hann gat fundið símann þegar farið var að nota hann. Svo bankaði lögreglan upp hjá manni á Egilsstöðum og endurheimti símann. Sá hafði keypt þjófstolinn símann og gefið dóttir sinni hann. Pælið í þessu.

User avatar

gislisveri
Stjórnandi
Innlegg: 1067
Skráður: 30.jan 2010, 23:08
Fullt nafn: Gísli Sverrisson
Bíltegund: Suzuki Fox
Staðsetning: Mosó
Hafa samband:

Re: Stolið Garmin 276C

Postfrá gislisveri » 30.okt 2012, 20:03

Sælir allir.

Ég verð því miður að segja að ef nafn mannsins birtist hérna inni munum við eyða þræðinum. Ég veit að það er ömurlegt að lenda í svona og Svopni, ég hef enga ástæðu til að rengja þína frásögn. Málið er bara að meðan ekki eru beinharðar sannanir fyrir þessu, þá mætti kalla það "ærumeiðingar" að birta nafn mannsins í þessu samhengi og það er einfaldlega eitt af fáu sem er bannað hérna inni.

Ég er búinn að draga það viljandi að bregðast við þessu vegna þess að ég var að vona að málið leystist af sjálfu sér, en í ljósi umræðunnar hér á undan varð ég að láta vita af því hvernig við tökum á þessu.

Svopni, þú getur haft samband við mig í ES eða í s. 859-9450 ef þú vilt fá betri skýringar á þessu.

Vonum að tækið og verkfærin "finnist" sem fyrst.

Súkkukveðja,
Gísli.

User avatar

Hfsd037
Innlegg: 968
Skráður: 20.aug 2010, 08:26
Fullt nafn: Hlynur Freyr Sigurðsson
Bíltegund: Toyota Hilux 3.0

Re: Stolið Garmin 276C

Postfrá Hfsd037 » 30.okt 2012, 20:18

Mér finnst að við ættum að gera svona feedback svæði hér.
Þá geta menn skrifað um góð eða slæm viðskipti með nafnbirtingum án vandræða..

Svona eins og hér http://bmwkraftur.is/spjall/viewforum.php?f=24
Toyota Hilux D/C '00 38" Í notkun
Toyota Hilux V6 X/C '94 38" seldur
Toyota Hilux V6 X/C '92 33" seldur
Chevy S-10 Single Cab '90 4.3 seldur

User avatar

Stebbi
Innlegg: 2098
Skráður: 31.jan 2010, 22:59
Fullt nafn: Stefán Stefánsson
Bíltegund: Eitthvað blátt
Staðsetning: Hafnarfjörður

Re: Stolið Garmin 276C

Postfrá Stebbi » 30.okt 2012, 21:23

Erum við alveg dottnir í tortryggnina, er ekki bara hægt að ganga út frá því að menn séu almennt heiðarlegir þangað til annað kemur í ljós.
Hilux DC 2.4 dísel úrbræddur
Jeep Grand Cherokee 4.7 Seldur
MMC Pajero 2.5TDI 38" Seldur
Ford Econoline 44"


gpó
Innlegg: 112
Skráður: 27.feb 2012, 21:03
Fullt nafn: Gunnar Páll Ólafsson

Re: Stolið Garmin 276C

Postfrá gpó » 31.okt 2012, 13:04

sæll Vopni
blessaður leifðu tengdapabbanum bara að borga þér þetta, þá ert þú búinn að fá bætur og kalllinn getur þá séð um það sjálfur að eiga við tengdasoninn, annars bara baráttukveðjur að norðan


hjalz
Innlegg: 250
Skráður: 09.jan 2011, 15:10
Fullt nafn: Hjálmar Guðjónsson
Bíltegund: ford explorer

Re: Stolið Garmin 276C

Postfrá hjalz » 24.nóv 2012, 15:36

gott ad tækid hafi skilad sér ! thad á ad setja svona menn í gapa stokk !!

User avatar

Stebbi
Innlegg: 2098
Skráður: 31.jan 2010, 22:59
Fullt nafn: Stefán Stefánsson
Bíltegund: Eitthvað blátt
Staðsetning: Hafnarfjörður

Re: Stolið Garmin 276C

Postfrá Stebbi » 24.nóv 2012, 18:53

Allt of lítið af því að menn séu tjargaðir og fiðraðir í seinni tíð. Ég hafði fulla trú á því að þessi gamli góði siður yrði tekin aftur upp í hruninu en ekkert varð af því frekar en öðru sem hefði mátt endurvekja á þeim tíma.
Hilux DC 2.4 dísel úrbræddur
Jeep Grand Cherokee 4.7 Seldur
MMC Pajero 2.5TDI 38" Seldur
Ford Econoline 44"


hjalz
Innlegg: 250
Skráður: 09.jan 2011, 15:10
Fullt nafn: Hjálmar Guðjónsson
Bíltegund: ford explorer

Re: Stolið Garmin 276C

Postfrá hjalz » 25.nóv 2012, 00:44

segdu...


grimur
Innlegg: 891
Skráður: 14.mar 2010, 01:02
Fullt nafn: Grímur Jónsson

Re: Stolið Garmin 276C

Postfrá grimur » 25.nóv 2012, 07:32

Til lukku með að endurheimta eitthvað af dótinu. Það leit nú ekki út fyrir það.
Tjörgun og fiðrun já...ég brosti út í annað og er reyndar alveg sammála. Það er alltof lítið tekið á svona smákrimmum, sennilega afþví það er ekkert pláss fyrir þá í steininum.
Ég hef stundum viðrað þá hugmynd að færa i lög refsireglu um hýðingar á almannafæri. Það væri hægt að hafa hýðingarkvöld fyrsta fimmtudag í hverjum mánuði í Laugardalshöllinni og selja inn á serimóníuna. Varpa fésinu á þeim upp á risaskjá á meðan.
Taka svolítið inn á allt umstangið í kring um þessa andskota og sjá til þess að þeir þekkist eftirleiðis.
Þessi pæling hefur nú sjaldnast fengið miklar undirtektir, en ég held að svona dæmi hafi meiri fælingarmátt en einhverjir skilorðs- eða nokkurra mánaða dvöl á Hrauninu- dómar.

kv
Grímur


KÁRIMAGG
Innlegg: 579
Skráður: 01.feb 2010, 12:59
Fullt nafn: Kári Freyr Magnússon

Re: Stolið Garmin 276C

Postfrá KÁRIMAGG » 25.nóv 2012, 07:55

grimur wrote:Ég hef stundum viðrað þá hugmynd að færa i lög refsireglu um hýðingar á almannafæri. Það væri hægt að hafa hýðingarkvöld fyrsta fimmtudag í hverjum mánuði í Laugardalshöllinni og selja inn á serimóníuna. Varpa fésinu á þeim upp á risaskjá á meðan.
Taka svolítið inn á allt umstangið í kring um þessa andskota og sjá til þess að þeir þekkist eftirleiðis.
Þessi pæling hefur nú sjaldnast fengið miklar undirtektir, en ég held að svona dæmi hafi meiri fælingarmátt en einhverjir skilorðs- eða nokkurra mánaða dvöl á Hrauninu- dómar.

kv
Grímur

LIKE á þessa hugmynd getum við ekki bara séð um þetta sjálfir :) :)


Til baka á “Almennt spjall”

Tengdir notendur

Notendur á þessu spjallborði: Engir skráðir notendur og 32 gestir