Síða 1 af 1

Patrol leiðinlegur í gang heitur !

Posted: 26.okt 2012, 17:10
frá Gunnar Björn
Sælir , mig langar að forvitnast hjá ykkur , vinur minn er með 2,8 Patrol 1999 módel og er með tölvukubb ! Það er eitt vandamál með hann að hann er hundleiðinlegur í gang heitur og á heitum sumardögum.
Þegar hann setur hann í gang þarf hann að býða eftir að ARB ljósið fari sem logar aðeins lengur en glóðarkertið og ef þetta tekkst ekki í fyrsta skipti þarf stundum að býða áður enn reynt er að starta aftur.
Kannast einhver við svona leiðindi í Patrol og hefur einhver fundið útúr því ?
Kveðja Gunnar Björn

Re: Patrol leiðinlegur í gang heitur !

Posted: 26.okt 2012, 17:15
frá solemio
Gæti þurft að ventlastilla hann,bíll sem ég átti hagaði sér svona og eftir ventlastillingu lagaðist hann

Re: Patrol leiðinlegur í gang heitur !

Posted: 27.okt 2012, 14:26
frá Izan
Þetta var vandamál á gamla mínum og lausnin fáránleg.
Skipta um geyma.

Minn var alltaf fínn í gang kaldur en þeim mun leiðinlegri kaldur og eftir að hann fékk nýja rafgeyma steinhætti þetta og ég veit ekki af hverju.

Kv Jón Garðar