Síða 1 af 1
hitaþolandi mottur
Posted: 18.okt 2012, 21:21
frá mahony
veit einhver hvar ég get keypt svona hotaþolandi einangrunar mottur er með econoline og vantar að setja þetta í kúpuna milli sætana (vélarhlíf) ég er búinn að tala við bílasmiðinn og landvélar og stál og stansa og bílabúð benna og þeir eiga þetta ekki
Re: hitaþolandi mottur
Posted: 18.okt 2012, 22:18
frá hobo
Spurning að nota aspestdúk með venjulegum einangrunarmottum. Fæst í Fossberg held ég.
Re: hitaþolandi mottur
Posted: 19.okt 2012, 00:04
frá villi58
Notaðu bara glertrefjamottu með álhimnu öðru megin, svo er hægt að nota einangrunarmottu með áli báðu megin, mæli frekar með því.Ég man ekki hvar þær fást en þetta er notað til að einangra heita potta og er ekki nema 8 mm þykkt og einangrar svipað og 2" steinull. Hef séð notað í glugga þar sem er bara einfalt gler og virkar svaka vel. Bændur hafa verið að kaupa þetta í fjósin og fl.
Re: hitaþolandi mottur
Posted: 19.okt 2012, 23:13
frá mahony
hobo wrote:Spurning að nota aspestdúk með venjulegum einangrunarmottum. Fæst í Fossberg held ég.
fossberg á þetta ekki til ætli maður þurfi ekki bara að panta þetta að utan eins og svo margt annað sem ekki fæst hérna heima
Re: hitaþolandi mottur
Posted: 20.okt 2012, 09:19
frá hobo
Það gæti verið að ég sé að tala um glertrefjamottu. Hef alltaf tengt þetta við asbest..