Síða 1 af 1

grand cherokee

Posted: 01.okt 2012, 18:28
frá ofur patti
sælir snillingar er með 97 árg cherokee það kemur oft á skjáinn cooling sensor bad hvað er til ráða er þetta hitaskinjarinn eða rofinn á hæðarboxinu hvað haldið þið hvernig hafa menn svo komið vhf talstöðvum og gps og svoleiðis tækjum fyrir í svona bilum fynnst plássið vera minna

Re: grand cherokee

Posted: 01.okt 2012, 20:59
frá icewolf
sæll
vandamálið er í tölvunni,
það er lóðmálmur sameiginlega sem hefur ekki meira í sambandi.
þetta vandamál er í mörgum Cherokee

kv
mikael

Re: grand cherokee

Posted: 01.okt 2012, 22:17
frá AgnarBen
Rétt hjá Mikael, smá "gúggl" leysir málið. Á þessum þræði er farið í gegnum bilanaleit vegna þessa skilaboða og hvernig á að laga.

http://www.jeepforum.com/forum/f13/coolant-sensor-bad-finally-fixed-175207/

Vandamálið getur verið
- bilaður sensor í affallstanki
- bilun í tengingum undir mælaborðinu eða slitin vír einhvers staðar á milli skynjara og tölvu
- Lóðning farin í sundur í VIC tölvunni (Vehicle Information Center) sem sýnir villuskilaboðin (virðist vera algengt)

kveðja
Agnar

Re: grand cherokee

Posted: 02.okt 2012, 11:34
frá JeepKing
ég er einmeitt með sama vandamál. var búinn að taka vic úr og leita að skemdri lóðningu fann ekkert. og búinn að óm mæla hæðaskynjarann og hann mædist réttur. þannig að það er ethvað sambandleisi einhvarstaðar í snúru sem ég nenni ekki að fynna...
Hef velt því fyrir mér að taka þetta VIC úr og henda því.. setja ethvað fallegt í staðinn.. T.d Talstöð :)

Re: grand cherokee

Posted: 02.okt 2012, 16:50
frá sukkaturbo
Sælir er með 1997 cherokee líka og er með þessi skilaboð. Ég var svo vitlaus að ég pantaði bara nýjan og er hann á leiðinni kostar rúmar 8500kr hjá H. Jónsson spurning að sleppa því að skipta um hann. En ætla að stelast til að nota þráðinn vona að það sé ekki að trufla en mig vantar orginal útvarpið til að geta notað aðgerðir í stýrinu ef einhver á eða veit um kveðja guðni