Síða 1 af 1

Ofur Turbo

Posted: 23.sep 2012, 11:25
frá Aparass
Til ykkar sem ferðist um á jeppum með stórum dekkjum og litlum díselvélum sem orka litlu.
Næst þegar þið eruð að berjast við kambana eða álíka brekkur þá skuluð þið bara rifja upp að að það er framleiddur bíll sem heitir Tata Nano og ég var að horfa á kynningarvideo þar sem segir að 2012 módelið er komið með nýjann og STÆRRI mótor sem kemur bílnum í 100km hraða á aðeins 27,5 sec :D
Svoleiðis orkubúnt þarf öruglega að bíða eftir hagstæðum vindi þegar það ætlar upp kambana okkar :P

http://www.tatanano.com/

Re: Ofur Turbo

Posted: 23.sep 2012, 12:55
frá reyktour
Spurning að versla sér patrol til að draga hann upp á fullu blasti.. :)

Re: Ofur Turbo

Posted: 23.sep 2012, 13:25
frá Aparass
Já og ekki spillir fyrir hvað þetta bremsar vel því þeir eru ekki einu sinni farnir að spá í að setja í þetta diskabremsur heldur kemur þetta með skálum að framan og aftan.
Hámarkshraðinn er reyndar ekki nema 105km en það þykir eflaust gott af 600cc tveggja cylendra mótor.
Svakalega langar mann nú allt í einu í svona leikfang :P