Síða 1 af 1

Re: Vantar gæjalegan jeppa í tónlistarmyndband um helgina.

Posted: 14.sep 2012, 17:48
frá Big Red
Hvaða fyrirtæki er að biðja um þetta. Fer oft allt eftir því.

Re: Vantar gæjalegan jeppa í tónlistarmyndband um helgina.

Posted: 14.sep 2012, 18:15
frá Freyr
Á þetta að vera eitthvað grín, bjóða 2 bjórkassa fyrir helgarleigu á jeppa????? Kanski stekkur einhver á þetta vegna áhuga á að jeppinn sinn sé í myndbandi en efast þó um það. Svo þarf að hafa í huga tryggingamál ef eitthvað skemmist.

kv. Freyr

Re: Vantar gæjalegan jeppa í tónlistarmyndband um helgina.

Posted: 14.sep 2012, 19:09
frá StefánDal
Þarna komstu með alveg týpíska setningu úr kvikmyndaiðnaði á Íslandi.
"Þetta er pro dæmi. Laun eru 2 kassar af bjór." ;)

Re: Vantar gæjalegan jeppa í tónlistarmyndband um helgina.

Posted: 14.sep 2012, 22:41
frá joisnaer
hahaha er ekki þessi málið bara? :P

Image

Image

öllu verra að hann er á egilsstöðum

Re: Vantar gæjalegan jeppa í tónlistarmyndband um helgina.

Posted: 14.sep 2012, 23:22
frá HaffiTopp
Öss iss, það það er ekki neitt. Ég sá einn miklu eldri en þennann hér uppi á Skaga, allavega með sama útliti með alvöru vörubílabrettakanta og alles. Allavega eitthvað meira breyttur. Mikið og vel ryðgaður og greynilega ekki vel við haldið. Gæti örugglega hentað í þetta verkefni. Hehe

Re: Vantar gæjalegan jeppa í tónlistarmyndband um helgina.

Posted: 14.sep 2012, 23:36
frá dabbigj
StefánDal wrote:Þarna komstu með alveg týpíska setningu úr kvikmyndaiðnaði á Íslandi.
"Þetta er pro dæmi. Laun eru 2 kassar af bjór." ;)



Vinn sjálfur í kvikmyndaiðnaðinum og man ekki eftir því að einhverjum hafi verið borgað í bjór fyrir svona leigu allavega ekki án þess að hann eða hún hafi beðið sérstaklega um það.

Annars er brandarinn góður.

Re: Vantar gæjalegan jeppa í tónlistarmyndband um helgina.

Posted: 15.sep 2012, 00:35
frá -Hjalti-
Hef lánað mína bíla tvisvar í kvikmyndatökur ( svartur á leik og Hlemmavideo Sagafilm og Zik Zak )og bæði skipti var borgað í peningum fyrir og allt pottþétt þar á bæ og dugaði í meira en tvo bjórkassa..

Re: Vantar gæjalegan jeppa í tónlistarmyndband um helgina.

Posted: 15.sep 2012, 02:12
frá StefánDal
Þetta var nú bara létt grín hjá mér;)