Síða 1 af 1

Fj40 í stækkun.

Posted: 05.sep 2012, 16:21
frá StebbiHö
Þar sem ég er ekki á spjallinu á ba.is set ég bara inn spurningu til Stján hérna, hvað er að frétta af þessum?
http://spjall.ba.is/index.php?topic=4384.15
Helv flott græja þarna á ferðinni og gaman að sjá hvert hann er kominn núna!

Kv, Stefán

p.s. jájá Stjáni, ég fer að koma 406 mótornum ofaní!!

Re: Fj40 í stækkun.

Posted: 06.sep 2012, 00:00
frá Óli Ingi
Það er búið að vera nóg að gera hjá Stjána að græja og gera út sín keppnistæki undanfarið. En 589 BBC mótorinn er komin í og búið að smíða mótorfestingar, og bita fyrir skiptinguna held ég líka. Næst á dagskrá er flækjusmíði og ganga frá í kringum það allt. Svo er slatti af einhverjum smotterís frágangi eftir, smíða stokk fyrir skiptir inní hann ásamt öðru. En það styttist í gangsettningu.