Síða 1 af 1
bílskúrar félagsmanna
Posted: 31.aug 2012, 20:11
frá LFS
mer datt i hug að bua til þráð tileinkaður bílskurum eða aðstöðu jeppamanna tækjum þeirra og tólum einnig kannski sniðugar uppsetningar eða lausnir í skúrinn. myndir að sjálfsögðu möst og ekki verra að mynda þau project sem i gangi eru ! eg hendi inn myndum af minum um helgina !
Re: bílskúrar félagsmanna
Posted: 31.aug 2012, 20:31
frá Sævar Örn
ég gæti ekki hugsað mér að vera í bílskúr, það þarf verkstæði undir mín project


Nú er að vísu lyfta þar sem bíllinn stendur á myndinni sjá mynd;

Re: bílskúrar félagsmanna
Posted: 31.aug 2012, 20:51
frá jeepson
Ég er að fara í búferla flutninga um næstu mánaðarmót. En mun auðvitað koma með myndir af skúrnum þegar ég fæ íbúðina og uppsetningu á honum. Þetta er ekki stór skúr en næg lofthæð til þess að koma jeppanum inn á 38" og á full pumpuðu. Sem að verður auðvitað frábært.
Re: bílskúrar félagsmanna
Posted: 31.aug 2012, 23:34
frá Valdi 27
Það dugar ekkert minna en verkstæði með flest öllum nauðsynlegum verkfærum
http://car-x.is/
Re: bílskúrar félagsmanna
Posted: 01.sep 2012, 01:21
frá StefánDal
Ég vil benda mönnum á það að fara varlega í það að setja inn myndir af verðmætunum sínum á svona opinn vef. Ég þori því allavegana ekki:)
Re: bílskúrar félagsmanna
Posted: 01.sep 2012, 06:45
frá Sævar Örn
er með HD cameru sem tekur í myrkri, hún er nettengd og hreyfinæm og sendir mér 60 myndir á sekúndu í tölvupóst ef óviðurkennd hreyfing á sér stað. Mæli með þessu fyrir alla sem eiga nettengda bílskúra, getur notað hvaða webcam sem er en ég mæli með 720 eða 1080p HD kameru til að ná góðum andlitsdráttum af fólki sem labbar inn í fjarska. og eins að hafa nætursjónar fítus ef þeir kunna ekki við að kveikja ljósin þegar gengið er inn.
þar að auki á ég fá verðmæti :)
http://www.ispyconnect.com/features.aspxsvo búa líka morðóðir litháar og rússar á efri hæðinni :)
Re: bílskúrar félagsmanna
Posted: 01.sep 2012, 16:43
frá LFS
her er skúrinn minn á reyndar eftir að taka til i honum er alveg pakkaður með bil inni enda rett undir 30fm en það verður vonandi steyptur grunnur að nyjum skur næsta sumar sem kemur honum i 60fm

Re: bílskúrar félagsmanna
Posted: 01.sep 2012, 17:13
frá kjartanbj
hehe, væri heldur þröng að vinna í mínum inn í þessu bili, ég hef bara aðgang að verkstæðinu niður í vinnu 450fm með lyftu og 2 gryfjum og svona og öllum helstu verkfærum, læt það duga hah svona þegar maður þarf eitthvað að gera, en þetta bilar víst aldrei enda toyota
Re: bílskúrar félagsmanna
Posted: 04.sep 2012, 20:32
frá Lilli1966
Það er til hjá Nova 3g auga sem senda myndskilaboð til eiganda ef einhver kemur óvænt inn í rýmið.
Re: bílskúrar félagsmanna
Posted: 05.sep 2012, 16:44
frá íbbi
ég og félagi minn leigjum gamalt verkstæði
Re: bílskúrar félagsmanna
Posted: 05.sep 2012, 16:52
frá kjartanbj
svopni wrote:Þú ert nú búinn að koma tvisvar amk að versla í hann síðan þú eignaðist hann ;) En vonandi kemur upp lifta hjá okkur núna í vikunni. Var að frétta af því að við værum að kaupa eina slíka sem erum að leigja saman. Þá fyrst er þetta orðið almennilegt, þá verður maður grimmur í bremsuviðgerðum á konubílnum!
haha já, helvítis leguvesen að framan , og svo var ég nú bara að versla bremsuhluti að framan sem er eðlilegur slithlutur
svo er reyndar búið að skipta um allar pakkdósir í afturhásingu eftir að ég keypti hann
en ég er líka búin að nota þetta í sumar :) búin að ferðast á honum svona 2-3þúsund km og nota hann sem daily driver
þannig svosem ekkert skrítið að maður þurfi að sinna viðhaldi á gömlum bíl :)
annars var þetta comment bara grín eins og flestir hafa vonandi fattað :Þ
Re: bílskúrar félagsmanna
Posted: 23.sep 2012, 03:15
frá Geir-H
Skúrinn
