Síða 1 af 1
Leit að segulrofa???
Posted: 30.aug 2012, 17:32
frá Big Red
Hvar fást svona segulrofar eins og eru á myndinni?
Eða jafnvel eitthvað betra?

Re: Leit að segulrofa???
Posted: 30.aug 2012, 18:34
frá Kalli
Re: Leit að segulrofa???
Posted: 30.aug 2012, 19:48
frá Big Red
Takk kærlega fyrir þetta
Re: Leit að segulrofa???
Posted: 30.aug 2012, 20:13
frá Izan
Hvar sjáiði segulrofa á þessari mynd, ég sé allskonar dót og drasl en engann segulrofa.
Kv Jón Garðar
Re: Leit að segulrofa???
Posted: 01.sep 2012, 08:00
frá ivar
Ekki það að ég sjái skýrt á myndinni en mér sýnist þetta vera þurkari sem er þarna c.a. fyrir miðju og vinstra meginn við hann kemur lögn niður.
Ef ég sé rétt eru þetta tveir rafmagnsvírar sem fara í kubb ofaná lögninni. Myndi giska á að það væri t.d. segulloki.
Kv. Ívar
Re: Leit að segulrofa???
Posted: 01.sep 2012, 11:12
frá Stebbi
Ég sé tvo. Hvað er vandamálið með þessa loka er það lokinn sjálfur eða spólan?
Re: Leit að segulrofa???
Posted: 01.sep 2012, 12:11
frá Big Red
Ef skoðaður er þessi sem er með græna hringnum þá sést í einhverskonar nabb. Sem er einhverskonar tappi. hann lekur, það fylgdu bílnum 3 aðrir svona lokar. Búið er að prófa alla 3 og allir leka. Einn brotnaði og þetta er sérkennilega steypt. Eins og margar mikrokúlur steyptar saman í einhverskonar kón.
Veit ekki hvort þetta er skiljanlegt.
Re: Leit að segulrofa???
Posted: 01.sep 2012, 12:21
frá villi58
Getur verið að standi straumur á þá, oft er afloftunin í kólfinum í miðri spólu ?
Re: Leit að segulrofa???
Posted: 01.sep 2012, 15:26
frá Startarinn
Ég var með afloftunarloka á loftpressum um borð hjá mér sem voru með svona kólfi og afloftun uppúr spólunni, þeir biluðu yfirleitt þannig að þeir fóru að leka um afloftunina, við því var ekkert að gera nema skipta um þá. ég myndi kanna Landvélar eða Barka. Ef þeir eiga ekki eins eiga þeir pottþétt eitthvað nothæft
Re: Leit að segulrofa???
Posted: 01.sep 2012, 15:27
frá Startarinn
svopni wrote:Þessi míkrókúlukónn er síja ekki satt?
Hljóðdeyfir býst ég við