Síða 1 af 1
					
				Cherokee gangturflun
				Posted: 18.aug 2012, 16:12
				frá sukkaturbo
				Sælir félagar ætla að spara mér vinnu og peninga með því að leita ráða hér hjá ykkur. Ég er með Jeep Cherokee limetd árgerð 1997 5,2 V-8 alveg fínasta bíl með öllu.Núna síðustu tvo daga hefur hann í tvö skipti verið að vanganga fyrra skiptið var hann í lausagangi  hann hökti eða var við það að drepa á sér. Í seinna skiptið á um 50 km hraða byrjaði hann að deyja út en jafnaði sig þegar gefið var  í og varð eðlilegur  vinnur fínt. Það eru  nýleg kerti í honum. Fyrir mér er þetta eins og skortur á bensíni eða hvað segið þið.kveðja guðni
			 
			
					
				Re: Cherokee gangturflun
				Posted: 18.aug 2012, 18:04
				frá sukkaturbo
				Sælir er þetta nokkuð amperkötturinn?
			 
			
					
				Re: Cherokee gangturflun
				Posted: 18.aug 2012, 23:10
				frá Orvis
				
			 
			
					
				Re: Cherokee gangturflun
				Posted: 19.aug 2012, 07:10
				frá sukkaturbo
				Sælir það er aldeilis saga hérna en án niðurstöðu ætli bíllinn sé kominn í lag?
			 
			
					
				Re: Cherokee gangturflun
				Posted: 19.aug 2012, 12:42
				frá Orvis
				Það er svo aftur á móti góð spurning. Ég keypti þennan skynjara vegna svipaðra vandamála en er ekki búinn að koma honum í.
			 
			
					
				Re: Cherokee gangturflun
				Posted: 19.aug 2012, 14:27
				frá sukkaturbo
				sæll hvað kosta þessir skynjarar?
			 
			
					
				Re: Cherokee gangturflun
				Posted: 19.aug 2012, 19:35
				frá Orvis
				ég fékk einhvern aftermarket skynjara á Ljónsstöðum fyrir einhvern 10 þús. kall.
			 
			
					
				Re: Cherokee gangturflun
				Posted: 19.aug 2012, 20:12
				frá Eyjo
				Sæll Guðni,
ég myndi heira í Kjartani gutta ef ég væri þú 
Kv. Eyjo
			 
			
					
				Re: Cherokee gangturflun
				Posted: 19.aug 2012, 20:54
				frá stebbiþ
				Sæll Guðni
Nei, það er ekki kominn niðurstaða í þetta leiðindamál. Þessi Cherokee er bíllinn hennar mömmu gömlu og ég sagði henni að lokum að hún yrði að fara með hann til strákanna í Bíljöfri. Ef þeir gætu ekki kveðið niður þennan draug, þá væri fokið í flest skjól. Sú gamla gerði það og þeir í Bíljöfri standa ráðþrota gagnvart þessu. Tölvan sendir alltaf sömu skilaboðin (bilaður MAP-sensor), en það er ekki málið. Það sannreyndi ég í byrjun og svo fékk ég staðfestingu á því hjá þeim. Mamma gamla hefur ekki efni á frekari bilanaleit sem skilar svo kannski engu.
Ætli tölvan/heilinn sé ekki bara orðin rugluð. Veit einhver um svoleiðis handa mér?
Hverjum datt eiginlega í hug að setja tölvuheila í bíla? 
Mér sýnist nú eitthvað annað vera að plaga bílinn hjá þér, miðað við lýsinguna. Hjómar eins og fastur eða bilaður lausagangsventill (Idle Air Control Valve). Ég vona að þér gangi betur að finna lausn í þessum sensora-frumskógi.
Kv,
Stebbi Þ.
			 
			
					
				Re: Cherokee gangturflun
				Posted: 19.aug 2012, 21:25
				frá sukkaturbo
				Sæll Stebbi þetta eru óþolandi bilanir. Jú það er ekki ólíklegt að þetta sé tengt kaldstartinu eða hægagangs stjórnun einhverri. En ég setti blöndungs vél í Ofur foxinn og henti 2,9 litra töluvélinni og kveikti í töluheilanum. Þetta var aldrei til friðs. kveðja guðni
			 
			
					
				Re: Cherokee gangturflun
				Posted: 19.aug 2012, 22:07
				frá stebbiþ
				Góð lausn hjá þér Guðni. Sumir segja eflaust að við séum fastir í steinöldinni, hvað bíla varðar. Ég er samt viss um að margir vildu eiga heilalausan bíl, eins og okkar. 
Kv, Stebbi
			 
			
					
				Re: Cherokee gangturflun
				Posted: 20.aug 2012, 11:26
				frá íbbi
				athugaðu hægagangsrofa,  hann er við throttleboddýið. hann bypassar lofti framhjá spjaldinu þegar gjöfin er uppi.
			 
			
					
				Re: Cherokee gangturflun
				Posted: 20.aug 2012, 11:58
				frá sukkaturbo
				Sæll takk Íbbi geri það