Síða 1 af 1

Vel gert Óskar

Posted: 14.aug 2012, 22:32
frá Svenni30
Færð hrós frá mér kallinn
Þetta er hann Óskar-Einfari hérna á spjallinu

http://www.dv.is/frettir/2012/8/14/hrei ... atturunni/

Re: Vel gert Óskar

Posted: 14.aug 2012, 22:41
frá Járni
Flott þetta, like.

Þetta er nú bara frekar spennandi verkefni, vitið þið um fleiri svona hræ sem mætti fjarlægja?

Re: Vel gert Óskar

Posted: 14.aug 2012, 22:58
frá Lada
Þetta er bara snilldar framtak hjá þeim og eiga þau hrós skilið!!
Finnst það samt hálfgerð synd að ekki skuli hafa verið hægt að bjarga bílnum og gera hann upp en það er önnur saga.
Þau fá klapp á bakið frá mér fyrir þetta.

Kv.
Ásgeir

Re: Vel gert Óskar

Posted: 15.aug 2012, 07:31
frá birgthor
Flottur Óskar

Re: Vel gert Óskar

Posted: 15.aug 2012, 07:35
frá vidart
Járni wrote:Flott þetta, like.

Þetta er nú bara frekar spennandi verkefni, vitið þið um fleiri svona hræ sem mætti fjarlægja?


Síðast þegar ég vissi þá var eitt hræ á Djúpavatnsleiðinni, rétt vestan við Kleifarvatn.

Re: Vel gert Óskar

Posted: 15.aug 2012, 09:27
frá Polarbear
frábært framtak hjá Óskari og algert þarfaþing. ég hef oft hugsað um að gera svona en aldrei látið verða af því einhverra hluta vegna. Gott að sumir menn framkvæma það sem þeir hugsa :)

Hvað með þetta bílhræ sem fjallað var um hérna í vetur, amerískur "húsbíll" sem er við rætur Langjökuls, er hann svo langt utanvið veg að ógerningur er að hirða hann nema á vetrartíma? þetta væri örugglega verðugt verkefni fyrir hóp áhugasamra ævintýramanna ef þetta er gert að vetri til allavega :)
viewtopic.php?f=2&t=8365&p=41212

Re: Vel gert Óskar

Posted: 15.aug 2012, 09:37
frá Óskar - Einfari
Takk fyrir það félagar. Maður hefur séð nokkur svona hræ í gegnum tíðina á víðavangi.... aldrei að vita nema maður endurtaki leikinn. Verkinu lauk í morgun þar sem ég fór með hræið til förgunar í hringrás. Ekki var hægt að lesa VIN númer af bílnum þannig að það er ekki hægt að hafa upp á eiganda.... ég hef þó einhverjar óljósar heimildir fyrir því að eigandinn sé fluttur til Danmerkur.

Mér hefur einmitt verið hugsað til þessa Fords sem var skilinn eftir á Langjökli..... hann þarf að fjarlægja áður en það fer fyrir honum eins og lödunni.

Ég hefði alveg viljað hafa þennan krabba þegar við vorum að rífa þetta upp :)
Image

Re: Vel gert Óskar

Posted: 15.aug 2012, 10:58
frá Stjáni
Þessi húsbíll sem er við vatnajökul? Er það ekki Anton hjá cheap jeep sem á hann, minnir endilega að hann hafi talað um á öðrum þræði
að hann hefði selt bílinn og kaupandinn hefði ekið bílnum þangað sem hann er og skilið hann eftir, en ekki hefði verið búið að ganga alveg frá pappírum eða þessháttar, það mætti kannski minna hann á bílinn ;)

Re: Vel gert Óskar

Posted: 16.aug 2012, 17:08
frá Oskar K
virkilega flott framtak, lætur vita ef þú ferð í annað svona project, aldrei að vita nema maður kíki með