Síða 1 af 1
Draga
Posted: 09.aug 2012, 09:02
frá Eggert
Góðan daginn.
Getur einhver sagt mér hvort
Það þarf öflugn bil að draga Trooper 35 "
Í kerru ? Eða dugar Patfinder 2006 ár eða 1998 paieró ?
Endilega láta mig vita hvort ég þarf að fá einhver meira öflugan bil í þetta.
Re: Draga
Posted: 09.aug 2012, 09:54
frá Sveinn.r.þ
Hæ,Pathfinder má draga 3000Kg,Pajero 2.8 2800kg þannig að báðir eru úr leik nema kerran sé mun léttari,ath hvorugir mega draga kerru sem er skráð fyrir meira en dráttargeta bíls segir,þannig að einu japonsku eru þá Patrol eða crusier 80-100-200 ,
Gangi þeir vél.
Kv
Sveinn.
Re: Draga
Posted: 09.aug 2012, 10:00
frá Eggert
Sem sagt að ég verð að fá einhver annan að draga ?
Kerran er 750 kiló. Er hægt að leiga í N1.
Burðargeta er 2,700.kg.
Re: Draga
Posted: 09.aug 2012, 14:29
frá Óli ágúst
Þá kemur Land Rover defender 110 sterkur inn má draga 3500Kg
Re: Draga
Posted: 09.aug 2012, 15:17
frá jeepcj7
Pajero 2.8 má draga 3300 kg
Annars er einhver skrá yfir þetta hér.
http://us.is/id/1029
Re: Draga
Posted: 09.aug 2012, 22:03
frá Eggert
Trooperin getur dregi 3500 hehe það bara hjálpar litið :-)
Verð vist að skilja hann eftir.
Nema einhver hér er á leið fram hjá Húsafelli á morgunn.
Re: Draga
Posted: 12.aug 2012, 21:57
frá elli rmr
hvernig stendur á því að það séu mismunandi reglur um hvað þaður má draga hvort sem maður er á bíl eða trukk?
á trukk sem má vera 18 tonn má ég bara draga 18 tonn allveg sama hvað vagnin er skraður fyrir svo lengi sem vagnin er skráður fyrir 18 tonn eða meira
á B réttinda bíl sem eru bílar sem meiga vera 3500kg og draga 3500kg ef skráning leyfir má ég draga það sem bíllinn er með í skráningu en ef kerran er skráð stærri þá má ekki draga hana hvaða rugl er það
Re: Draga
Posted: 12.aug 2012, 22:04
frá silli525
Óli ágúst wrote:Þá kemur Land Rover defender 110 sterkur inn má draga 3500Kg
Enn á ný finnst mér vanta "like" takkan hérna :)
Re: Draga
Posted: 12.aug 2012, 22:25
frá Stebbi
Fæ ekki betur séð en að þú farir bara á Pajeroinum og sækir greyið. Ef að kerran er 750kg og Trooper er ca. 2.2 tonn þá er það undir þessum 3300kg sem Pajeroinn má draga.
Ég hef farið með Zetor 7711 með ámoksturstækjum í smá ferðalag á svona stórri kerru og það var ekkert mál á 2.5 pajero.