Síða 1 af 1
víbringur í mismunadrifi
Posted: 29.júl 2012, 17:07
frá einarkrh
Er á isuzu pickup og þegar ég legg á hann og gef inn ekkert botn gjöf bara venjulega þá kemur svona "víbringur"
eða urg er búinn að útiloka held ég allt annað enn að þetta komi hreinlega frá drifinu.Ef einhver hérna gæti sagt mér hvað þetta væri þá yrði ég mjög glaður.takk takk kv.Einar
Re: víbringur í mismunadrifi
Posted: 29.júl 2012, 20:54
frá olei
Það vantar meiri upplýsingar, ég geri ráð fyrir því að þetta sé fjórhjóladrifsbíll, er hann með driflokum?
Gerist þetta í fjórhjóladrifinu eða þegar þú ert bara í afturdrifinu? Í lokunum?
Mér finnst það afar ólíklegt að titringur sé ættaður frá drifinu. Öxulliðir og hjöruliðir í drifsköftum eru nærtækari skýring.
Re: víbringur í mismunadrifi
Posted: 29.júl 2012, 20:56
frá Stebbi
Ónýtur diskalás ???? Ef það er diskalás í drifinu þá er ekki vitlaust að skola það út og setja rétta olíu og bætiefni.
Re: víbringur í mismunadrifi
Posted: 29.júl 2012, 21:25
frá einarkrh
Þetta er í afturdrifi það eru ekki neinar læsingar þetta gerist bara þegar ég legg á hann í botn og keyri af stað þá kemur svona víbringshljóð