Síða 1 af 1

Forðast affelgun í snjóakstri

Posted: 29.júl 2012, 09:47
frá villi58
Langar að forvitnast hvað menn eru að gera til að forðast affelgun, hvernig hafið þið verið að gera þetta við felgurnar ?

Re: Forðast affelgun í snjóakstri

Posted: 29.júl 2012, 10:14
frá villi58
svopni wrote:Auðveldast er að sjóða innaná kantinn á felgunum, eða láta valsa kantinn. Nú svo er beadlock.

Takk fyrir svarið! Ég þarf að komast að því hverjir eru græjaðir til að valsa felgur, best væri að finna einhvern á Akureyri

Re: Forðast affelgun í snjóakstri

Posted: 29.júl 2012, 11:10
frá villi58
svopni wrote:Auðveldast er að sjóða innaná kantinn á felgunum, eða láta valsa kantinn. Nú svo er beadlock.

Er verið að setja beadlock bara að utan eða líka að innan ?

Re: Forðast affelgun í snjóakstri

Posted: 29.júl 2012, 13:15
frá kjartanbj
bara að utan hjá mér og límt vel að innan

Re: Forðast affelgun í snjóakstri

Posted: 29.júl 2012, 14:47
frá Brjótur
Það eru nokkrir búnir að setja að innan líka. en það eru meiri líkur á að það affelgist að utan, en alltaf gott að vera áhyggjulaus

Re: Forðast affelgun í snjóakstri

Posted: 29.júl 2012, 19:26
frá Svenni30
Villi ég er með valsaðar felgur og með Mickey Thompson sem eru þekkt fyrir að vera laus á felgum. Hef aldrei lent í að affelga.

Re: Forðast affelgun í snjóakstri

Posted: 29.júl 2012, 20:35
frá villi58
Svenni30 wrote:Villi ég er með valsaðar felgur og með Mickey Thompson sem eru þekkt fyrir að vera laus á felgum. Hef aldrei lent í að affelga.

Sæll! Hvar lést þú valsa felgurnar ?

Re: Forðast affelgun í snjóakstri

Posted: 29.júl 2012, 20:46
frá Svenni30
Ég keypti þær með bílnum á sínum tíma.

Re: Forðast affelgun í snjóakstri

Posted: 29.júl 2012, 21:22
frá Dúddi
GJ járn.

Re: Forðast affelgun í snjóakstri

Posted: 29.júl 2012, 23:15
frá Freyr
GJ járnsmíði er að því er ég best veit sá eini sem valsar felgur. Veit ekki betur en hann hafi verið sá fyrsti til að gera þetta og sé sá eini.