Hversu fáfróðir geta túristar á Íslandi verið?!

User avatar

Höfundur þráðar
-Hjalti-
Innlegg: 1635
Skráður: 07.feb 2010, 21:22
Fullt nafn: Hjalti Sigurðsson

Hversu fáfróðir geta túristar á Íslandi verið?!

Postfrá -Hjalti- » 18.júl 2012, 04:03

ég næstum kikna í hnjánum við að lesa þetta ...





Image


Toyota 44"runner
Arctic cat M8000 162"

User avatar

Óskar - Einfari
Innlegg: 690
Skráður: 01.feb 2010, 08:29
Fullt nafn: Óskar Andri Víðisson
Bíltegund: Toyota
Staðsetning: Vatnsenda, Kópavogur
Hafa samband:

Re: Hversu fáfróðir geta túristar á Íslandi verið?!

Postfrá Óskar - Einfari » 18.júl 2012, 09:08

Mér finnst eiginlega doldið skammarlegt hvað það var hlaupið til handa og fóta og eytt 3 dögum í leit á þyrlu án þess að kanna málið ítarlega. Allur eru varinn góður og allt það en þetta fannst mér vera hálfgert panic!
Toyota Hilux 2007 3.0 D-4D sjálfskiptur 38" breyttur

https://www.instagram.com/oskar.andri/


gaz69m
Innlegg: 665
Skráður: 10.mar 2010, 11:54
Fullt nafn: Guðmundur Árni sigurðsson
Bíltegund: gaz69m
Staðsetning: niður við sjó í flóanum flata

Re: Hversu fáfróðir geta túristar á Íslandi verið?!

Postfrá gaz69m » 18.júl 2012, 10:11

fyrir einhverjum árum tók ég par upp í bíl hjá mér rétthjá hellu og för þeira var heitið að fara hringin í kringum heklu , ég rak augun í að farangur þeira var ekki mikil og spurði um búnað sem þau væru með eins og primus og góðasvefnpoka og hlían fatnað , svar þeirra var að þau þyrftu ekkert svoleiðis það væri búið að seigja þeim að það væri sumar á íslandi , það tók töluverðan tíma að fá þau til að skilja veðrabreytingar sem geta orðið á fjöllum á íslandi . ég endaði á að keyra þau til manns sem var með skipulagðar ferðir í kringum heklu . það vantar meira að seigja túristum um að veður breytist hratt á fjöllum þú ert á íslandi ekki benidorm
sé það framleit úr sovéskustáli þá langar mig að eignast það.


kjartanbj
Innlegg: 899
Skráður: 06.jún 2011, 18:30
Fullt nafn: kjartan Björnsson
Bíltegund: Ford Ranger
Staðsetning: Reykjavík

Re: Hversu fáfróðir geta túristar á Íslandi verið?!

Postfrá kjartanbj » 18.júl 2012, 13:13

ég keyrði einu sinni áætlun upp í landmannalaugar , eitt sinn var erlend kona með í för sem var alveg óð í það að ganga á hekluna
hún var ekki með neinn farangur með sér, ekki klædd til fararinnar né í skóm til þess, það var virkilega erfitt að koma henni í skilning um að hún væri ekki að fara ganga þetta svona , neitaði að hleypa henni út og fór með hana bara aftur niður á hellu síðan
Ford Ranger 91 351w 39.5" -Seldur-
Dodge Ram 2500 5.9 Cummins -Seldur-
-Seldur- Land cruiser 80 VX 44" -Seldur-

User avatar

diddim
Innlegg: 20
Skráður: 10.aug 2011, 14:50
Fullt nafn: Kristmundur Magnússon
Bíltegund: Y60 Patrol 38´

Re: Hversu fáfróðir geta túristar á Íslandi verið?!

Postfrá diddim » 18.júl 2012, 15:03

Fjölskylda konunar er með bústað í Aðalvík á Hornströndum og bróðir konunar var eitt sinn staddur þar þegar hann tók eftir því að það stæði maður við höfnina í pressuðum buxum og blank skóm með smá tösku. Þá kom í ljós að þetta væri ástrali sem hafði ákveðið allt í einu að ferðast til Íslands, tók flugrútuna til BSÍ, sá Íslandskort og á því stóð Ísafjörður og hann ákvað að skella sér með næsta flugi. Þegar þanngað var komið sá hann skilti sem á stóð "áætlunarferðir til Aðalvíkur" og hann ákvað að fara þanngað og gista á næsta Bed and Brekfast??? :D
Það voru frekar fáir á Hornströndum á þessum tíma og bróðir konunar sá eini sem talaði góða ensku. Þannig að hann sat fastur með ferðalangan og bauð honum að gista og varð að elda ofaní hann því hann bjóst við því að það væri bara 3ja stjörnu B&B á þessu svæði.
2000 módel 2.8tdi Pajero ´33 - Seldur.
1994 Nissan Patrol ´38


bjornod
Innlegg: 730
Skráður: 01.feb 2010, 17:54
Fullt nafn: Björn Oddsson
Bíltegund: Trooper

Re: Hversu fáfróðir geta túristar á Íslandi verið?!

Postfrá bjornod » 18.júl 2012, 16:02

Svo má ekki gleyma öllum gallabuxnaköllunum á stóru jeppunum. Oftar en ekki eru erlendir ferðamenn mun betur búnir en Íslendingar.


Guðmann Jónasson
Innlegg: 58
Skráður: 10.mar 2012, 11:05
Fullt nafn: Guðmann Jónasson
Bíltegund: Musso

Re: Hversu fáfróðir geta túristar á Íslandi verið?!

Postfrá Guðmann Jónasson » 18.júl 2012, 17:32

Auðvitað hefur maður rekist á ýmsa frekar furðulega erlenda ferðalanga hér og þar um landið,mér finnst hins
vegar stærri hlutinn vera ansi fróður um landið og náttúruna...og mættu margir heimamenn líta sér nær :)

Kv.GJ

User avatar

Brjótur
Innlegg: 565
Skráður: 31.jan 2010, 23:57
Fullt nafn: helgi j. helgason

Re: Hversu fáfróðir geta túristar á Íslandi verið?!

Postfrá Brjótur » 18.júl 2012, 18:34

Þið eruð góðir dæmið 600.000 manns af 4 sögum hérna, upp til hópa eru túristar mjög vel búniroftast betur búnir en landinn sjálfur :) þessi dæmi sem þið nefnið eru undantekningar strákar mínir og til þess fallnar að reyna að búa til æsing og hneykslan. :)


stone
Innlegg: 79
Skráður: 08.okt 2011, 08:12
Fullt nafn: Þorsteinn Þorgeirsson

Re: Hversu fáfróðir geta túristar á Íslandi verið?!

Postfrá stone » 18.júl 2012, 18:56

sammála þér brjótur það er oftast verið að dæma stóra hópa af einhverjum tröllasögum um nokkra einstaklinga. Margir Íslendingar gætu lært af túristum varðandi þekkingu á landinu því hún er því miður almennt að minna hjá okkur Íslendingum.


Ofsi
Innlegg: 278
Skráður: 31.jan 2010, 22:32
Fullt nafn: Jón Garðar Snæland

Re: Hversu fáfróðir geta túristar á Íslandi verið?!

Postfrá Ofsi » 18.júl 2012, 19:07

Góðir, hér væri hægt að setja inn 3000 síðuna rannsóknarskýrslu alþingis um heimsku íslendinga. Væri sennilega auðvelt að bæta öðrum 3000 síðum við. Því hvert hneyklismálið og rekur annað í fjölmiðlum um heimsku okkar íslendinga.


risinn
Innlegg: 195
Skráður: 22.des 2010, 21:09
Fullt nafn: Ragnar Páll Jónsson

Re: Hversu fáfróðir geta túristar á Íslandi verið?!

Postfrá risinn » 18.júl 2012, 22:05

Eru til öðruvísi Skagfyrðingar ????? :-)

Kv. Ragnar Páll sem að var í skagafyrði í rúmt ár. :-)

User avatar

Svenni30
Innlegg: 1164
Skráður: 05.maí 2011, 14:49
Fullt nafn: Sveinn Haraldsson
Bíltegund: Toyota hilux
Staðsetning: Dalvík

Re: Hversu fáfróðir geta túristar á Íslandi verið?!

Postfrá Svenni30 » 18.júl 2012, 23:20

Skagfyrðingar eru snillingar, það er bara þannig.
Sveinn Haraldsson
Toyota hilux 38"

User avatar

Tómas Þröstur
Innlegg: 330
Skráður: 19.mar 2010, 10:03
Fullt nafn: Tómas Þröstur Rögnvaldsson

Re: Hversu fáfróðir geta túristar á Íslandi verið?!

Postfrá Tómas Þröstur » 19.júl 2012, 08:23

Það sem mér finnst oft vera merkilegt með "utan malbiks" túristana hér á landi eru öfgarnir í ferðafærni þeirra. Annað hvort fólk sem veit svona nokkurn vegin hvað það er að gera svona miðað við það að vera gestir í kannski dálítið framandi og varasömu landi. Síðan á hinn veginn fólk sem vantar oft ansi mikla reynslu og útbúnað til að geta bjargað sér og ferðast í þeim aðstæðum sem upp geta komið. Ekki svo mikið um ferðamenn þarna mitt á milli.


Til baka á “Almennt spjall”

Tengdir notendur

Notendur á þessu spjallborði: Engir skráðir notendur og 19 gestir