Síða 1 af 1

forvitni um 3.0l patrol og innköllun

Posted: 27.jún 2012, 21:14
frá halldorrj
innköllunnin á sínum tíma á þessum bílum í vélarskipti kannast allir við, en var að velta einu fyrir mér ef að bíllinn er ekki búinn að fara í vélaskipti, ætli það sé hægt að fara framá að þess sé gert núna eða ?? bara svona pæling hjá mér, geri mér grein að þetta er örugglega fyrnt hjá þeim.

Re: forvitni um 3.0l patrol og innköllun

Posted: 27.jún 2012, 22:15
frá Gísli Þór
halldorrj wrote:innköllunnin á sínum tíma á þessum bílum í vélarskipti kannast allir við, en var að velta einu fyrir mér ef að bíllinn er ekki búinn að fara í vélaskipti, ætli það sé hægt að fara framá að þess sé gert núna eða ?? bara svona pæling hjá mér, geri mér grein að þetta er örugglega fyrnt hjá þeim.

Það ætti að vera búið að skipta um vélar í öllum sem voru í innkölluninni sem spannaði árgerð 2000 til 2001.
Það er ekki séns að það verði gert í dag.
kv Gísli

Re: forvitni um 3.0l patrol og innköllun

Posted: 27.jún 2012, 23:14
frá AgnarBen
Það voru ekki allir 2001 bílarnir innkallaðir, langt frá því. Ég náði að kría út nýja vél þegar hún fór í mínum 2001 bíl en það gerðist árið 2007, þá rúmlega 6 ára gömul og ekin einhverja 155 þús.km. Það þurfti talsverða þrjósku af minni hálfu og ég lagði til vinnuna við að skipta um vélina. Aldrei hef ég heyrt um að menn hafi fengið nýja vél án þess að hún væri hrunin (fyrir utan þær sem voru innkallaðar) og það væri kraftaverki líkast ef þú næðir því í gegn í dag ........ myndi held ég bara splæsa á þig einum Thule ef svo færi ;-)

Re: forvitni um 3.0l patrol og innköllun

Posted: 29.jún 2012, 02:31
frá halldorrj
vélin er ekki farin í mínum, var bara forvitni í mér hef aldrei fengið almennilega staðfestingu á að það hafi verið búið, en BL fundu hann í nissan gagnagrunninum og skipt var um vél 24 sept 2003 :)