Síða 1 af 1
Naf í Patrol gamla/nýja
Posted: 22.maí 2010, 14:57
frá Hagalín
Nú lenti ég í því skemmtilega (því menn eru nú byrjaðir að tala um „skemmtilegar" bilanir) atviki að nánast að skemma hjá mér nafið á patrol, vinstra megin að framan. Felgubolta götin eru orðin vel stór og kjöguð og leiðinleg en annað í lagi. Var með 14mm bolta fyrir þannig að bora út fyrir stærri er held ég ekki málið.
Ég var að velta fyrir mér hvort maður geti fengið nafið úr gamla (90-97) og sett í og aftengt bara ABS dótið í bílnum??? Hafa menn gert þetta eða er einhver annar munur á þessum nöfum nema ABS dótið?
Er á 44" bíl
KV Hagalín
Re: Naf í Patrol gamla/nýja
Posted: 22.maí 2010, 21:09
frá Brjótur
Sæll Hagalín þetta er nú hugmynd sem sjálfsagt margir hafa spurt sig, en því miður gengur þetta ekki , búinn að ganga úr skugga um það sjálfur, þetta er allt sverara í 98 og yngri, semsagt bremsudiskurinn, dælan, klossarnir , þessvegna er svona mikill verðmunur á partasölum á milli árgerða 97-98 :(
kveðja Helgi
P.s. Ég hef nú oft velt fyrir mér að hreinlega sjóða þá bara fasta ef ég mundi lenda í þessu, ef þú tekur nafið af og skrúfar felgu á nafið og herðir að því þá ætti að vera hægt að sjóða boltana fasta og þá er suðan bara að halda þeim á sínum stað ekki satt?
Re: Naf í Patrol gamla/nýja
Posted: 22.maí 2010, 22:14
frá Hagalín
Jú ég held að maður geri það bara og láti það allavega duga sumarið.
Þetta drasl kostar alveg helvítis slatta af peningum..........
Re: Naf í Patrol gamla/nýja
Posted: 24.maí 2010, 08:23
frá Hagalín
Re: Naf í Patrol gamla/nýja
Posted: 24.maí 2010, 10:21
frá birgthor
.
Re: Naf í Patrol gamla/nýja
Posted: 25.maí 2010, 07:54
frá HaffiTopp
..
Re: Naf í Patrol gamla/nýja
Posted: 25.maí 2010, 10:20
frá Hagalín
Jú málið er að þetta kostar 40þúsund notað á partasölu.
Þori ekki að athuga hvað þetta kostar nýtt örugglega 100-150þúsund í IH.
En er búinn að ráðfæra mig við nokkra og sýna þeim þetta og við
ætlum að fá bolta í þetta og sjóða fasta með nafið áfast felgu því
það er í raun bara eitt felgubolta gat á nafinu sem er ill farið hin eru ekki
svo slæm.