Síða 1 af 1
Hverjir laga AC kerfi?
Posted: 03.jún 2012, 13:41
frá Lada
Sælir/ar
Hvaða verkstæði sérhæfa sig eða eru klár í loftkælingu? Þetta er fyrir Subaru Outback 2001.
Kv.
Ásgeir
Re: Hverjir laga AC kerfi?
Posted: 03.jún 2012, 16:41
frá Sævar Örn
Car-med dalvegi kópavogi eru með græjur fyrir ac
Re: Hverjir laga AC kerfi?
Posted: 03.jún 2012, 23:56
frá Freyr
Ferð í BL til að bilanagreina og laga kerfið, þó ég þori ekki að fullyrða það þá tel ég að hefðbundinn kælivélaverkstæði eins og t.d. Alkul taki ekki sjálfa bílana inn í viðgerð.
Re: Hverjir laga AC kerfi?
Posted: 04.jún 2012, 01:42
frá Oskar K
ef kúplingin snýst þegar þú stillir á a/c farðu þá bara og láttu fylla á kerfið, sjaldnast eitthvað að dælunum í subaru
Re: Hverjir laga AC kerfi?
Posted: 04.jún 2012, 20:30
frá Stebbi
Flest kælivélaverkstæði fylla á kerfið fyrir þig svo lengi sem þú veist hvað á að fara mikið á það og hvaða kælimiðill. Það stendur í flestum tilfellum á límmiða undir húddinu á nýrri bílum.
Re: Hverjir laga AC kerfi?
Posted: 05.jún 2012, 03:34
frá solemio
komdu bara með hann upp í ísfrost(gamla alkul)og við reynum að redda þessu