Síða 1 af 1
Fá gas brennara leigðan
Posted: 23.maí 2012, 18:11
frá Pajero1
Sælir félagar, hvar er hægt að fá nettan gas brennara leigðan í bænum?
Re: Fá gas brennara leigðan
Posted: 23.maí 2012, 20:38
frá Polarbear
ef þú ert að tala um logskurðarspíss (svokölluð gastæki) þá held ég að ísaga leigi út tæki í dagleigu fyrir sæmilegt fé.
svo er hægt að kaupa einnota kúta og lítil svona hobbý-tæki uppí Gastech uppá höfða.
Re: Fá gas brennara leigðan
Posted: 23.maí 2012, 22:48
frá Pajero1
Polarbear wrote:ef þú ert að tala um logskurðarspíss (svokölluð gastæki) þá held ég að ísaga leigi út tæki í dagleigu fyrir sæmilegt fé.
svo er hægt að kaupa einnota kúta og lítil svona hobbý-tæki uppí Gastech uppá höfða.
Er þetta leigutæki eitthvað sem hægt er að koma fyrir í skottinu á fólksbíl ?
Þetta þarf að vera það öflugt að hægt sé að brenna í sundur solid tommu rör.
Re: Fá gas brennara leigðan
Posted: 23.maí 2012, 22:58
frá Polarbear
já þú ættir að koma því í skott á bíl... séu þetta þau tæki sem ég hef séð. ég hef aldrei leigt svona sjálfur, langbest fyrir þig að hringja í ísaga í fyrramálið.
litlu tækin í Gastech komast auðveldlega á sæmilega voldugt reiðhjól :)
þú ert að tala um tommu breiða járnstöng (eða það sem flestir kalla öxul) geri ég ráð fyrir, ekki rör? þú ættir að ná svoleiðis í sundur með þessum hobbýtækjum líka.
sé þetta allra fyrsta skurðarverkefnið þitt með svona græjum þá mæli ég með því að þú fáir einhvern til að sýna þér handtökin :)