Síða 1 af 1
járnskurður
Posted: 06.maí 2012, 14:12
frá Gunnar
Sælir, vitið þið um einhver fyrirtæki eða einstaklinga sem geta skorið út fyrir mig pústgreinaflangs, þ,e þarf að breyta flækjum og vantar nýjan flangs til að sjóða rörin á, og er með teikningu af honum??
Re: járnskurður
Posted: 06.maí 2012, 14:14
frá jongunnar
Héðinn, Geislatækni og Vélaverkstæði Hjalta Einarssonar og Hamar ásamt fleiri góðum fyrirtækjum.
Re: járnskurður
Posted: 06.maí 2012, 14:16
frá Gunnar
gera þeir þetta í vatskurðarvélum? veistu hvort þetta myndi kosti augun úr eða?
Re: járnskurður
Posted: 06.maí 2012, 14:19
frá Bskati
Áhaldaleigan er ódýrust í þessu. Kostar örugglega ekki nema nokkra þúsundkalla hjá honum. Hann sker með plasma en gerir það vel.
Re: járnskurður
Posted: 06.maí 2012, 14:21
frá Gunnar
Gott mál, mér er svosem sama með hverju þetta er skorið bara að það sé vel gert;)
Re: járnskurður
Posted: 06.maí 2012, 14:41
frá Þorri
Ég get skorið þetta fyrir þig með vatni þá losnaru við að þetta verpi sig í hitanum af plasmanum og slípivinna brúnum er lítil sem engin nákvæmnin mikið meiri. Mesti tímin fer yfirleitt í að teikna þetta upp og græja skurðarmynd af stykkinu. Í hvaða formati er teikningin sem þú ert með? Flestar skurðarvélar keyra á auto cad svo ef þú sendir mér teikningu í dwg eða dxf þá er ekkert mál að redda þessu fyrir þig. Flest ef ekki öll teikniforrit bjóða uppá að vistað sé í auto cad.
Kv. Þorri