Síða 1 af 1

Hver er hin rétta felgubreidd fyrir 46"????

Posted: 02.maí 2012, 15:27
frá sukkaturbo
Er að fara að breikka felgur fyrir 46" dekkin sem eru að fara undir Ofur Foxinn hver er hin eina rétta felgubreidd er hér á 17" breiðum 15" háum felgum.Ég er með 16" háar og er að pæla í 19 til 20" kanski og mikið? kveðja Guðni

Re: Hver er hin rétta felgubreidd fyrir 46"????

Posted: 02.maí 2012, 16:54
frá GeiriLC
þeir sem að ég hef talað við vilja meina að þú fáir mesta flotið með að ver með tommu minni eða jafn breiðar felgur og dekk

Re: Hver er hin rétta felgubreidd fyrir 46"????

Posted: 02.maí 2012, 17:45
frá Árni Braga
Sæll ég er með 19" hjá mér.
og það þrælvirkar.

Re: Hver er hin rétta felgubreidd fyrir 46"????

Posted: 02.maí 2012, 17:59
frá jeepson
örninn hérna á spjallinu er með 21"breiðar 15" háar felgur til sölu sem að vou ætlaðar á 46" dekk.

Re: Hver er hin rétta felgubreidd fyrir 46"????

Posted: 02.maí 2012, 18:15
frá sukkaturbo
Sælir já ég er nokkuð sammála þessu sirka 19,5" breiðar felgur eða sama og sólinn. En get ekki tjáð mig af viti þar sem ég hef ekki prufað þetta en læt vaða á 19" og spurning hvað maður þarf að hafa þykkt í þessari breikkun bíllinn léttur og kraftlaus og má ekki við miklu og sjálfsagt er þetta of mikið fyrir hann en gaman að prufa. Eru einhverja myndir til af skurði á svona dekkum mín eru rúmlega 1/2 slitin og furðu mjúk og létt að lyfta þeim og meðhöndla þau kom mér á óvart.Ætla að skera þau frekar mikið kveðja guðni

Re: Hver er hin rétta felgubreidd fyrir 46"????

Posted: 02.maí 2012, 18:27
frá ivar
ég setti 16" breiðar undir F350.

Kemur alveg vel út fyrir mig en það er fljótt komin krumpa í dekkin.

Ég valdi þessa breidd til að hlífa öllum búnaði :)

Re: Hver er hin rétta felgubreidd fyrir 46"????

Posted: 05.maí 2012, 16:55
frá juddi
2mm í tunnuna er alveg nóg hvað skurð varðar eru myndir hér

Image

Image

Það mætti bæta við þverskurð í gegnum kubbana á brúninni því þeyr hyndra dekkið í að fletjast út og valda sprungum meðframm kubbunum sem hafa eiðilagt dekkinnn

Re: Hver er hin rétta felgubreidd fyrir 46"????

Posted: 06.maí 2012, 11:56
frá sukkaturbo
sælir og takk fyrir þetta sammála með hliðarkubbana spurning hvar sé besta að skera á kanski á tveimur stöðum? kveðja guðni