Síða 1 af 1

Vitið þið hvar svona verkfæri fæst fyrir lítið?

Posted: 21.apr 2012, 03:19
frá Hfsd037
Image

þarf að getað notað það í amk eitt skipti

Re: Vitið þið hvar svona verkfæri fæst fyrir lítið?

Posted: 21.apr 2012, 07:45
frá helgiaxel
Er þetta ekki kallað dór?

Kv
Helgi Axel

Re: Vitið þið hvar svona verkfæri fæst fyrir lítið?

Posted: 21.apr 2012, 09:29
frá Polarbear
ég myndi nú bara smíða þetta...... hvað á þetta ágæta tæki að gera?

Re: Vitið þið hvar svona verkfæri fæst fyrir lítið?

Posted: 21.apr 2012, 10:00
frá Hjörvar Orri
Þetta er rúnkari. Einfaldast að smíða þetta sjálfur, að mínu mati.

Re: Vitið þið hvar svona verkfæri fæst fyrir lítið?

Posted: 21.apr 2012, 15:28
frá Hfsd037
Polarbear wrote:ég myndi nú bara smíða þetta...... hvað á þetta ágæta tæki að gera?


Rétta beyglur, ég bora í boddýið og skrúfa þessu svo í og lem/tosa beygluna út
þetta heitir víst Draghamar

Re: Vitið þið hvar svona verkfæri fæst fyrir lítið?

Posted: 21.apr 2012, 18:38
frá siggisigþórs
ég myndi nú frekar púnta þetta fast frekar en að bora gat

Re: Vitið þið hvar svona verkfæri fæst fyrir lítið?

Posted: 21.apr 2012, 19:20
frá Hfsd037
siggisigþórs wrote:ég myndi nú frekar púnta þetta fast frekar en að bora gat



afhverju myndirðu gera það?

Re: Vitið þið hvar svona verkfæri fæst fyrir lítið?

Posted: 21.apr 2012, 20:03
frá -Hjalti-
Mikið auðveldara að fela það en eitthverja bor

Re: Vitið þið hvar svona verkfæri fæst fyrir lítið?

Posted: 21.apr 2012, 21:28
frá ellisnorra
Án nokkurar spurningar myndi ég gera þetta með plötum, ca jafn löngum og beygludalurinn (2-5cm venjulega), punkta á rúmlega cm fresti, græja svona rúnk-draghamar á wise grip töng og bíta í blikkplötuna og draga það svo út í nokkrum léttum höggum og engin læti. Til að fjarlægja plötuna þá sker maður smá sár í suðuna og juggar henni svo til og brýtur suðurnar.
Svoleiðins hef ég gert með mjög góðum árangri, meðal annars við afturhlera á ford eftir að teyjuspotti fór mjög illa með hann. Eins og Hjalti segir, mikið auðveldara að fela punkt för heldur en út-dregin borgöt.

Re: Vitið þið hvar svona verkfæri fæst fyrir lítið?

Posted: 22.apr 2012, 04:19
frá OskarV
Á svona græju til að sjóða lítinn tein við boddíið sem maður skellir svo draghamar á.

Væri kannski hægt að lána græjuna gegn vægu gjaldi ef það er áhugi fyrir því.

Re: Vitið þið hvar svona verkfæri fæst fyrir lítið?

Posted: 22.apr 2012, 17:36
frá siggisigþórs
þegar járn bognar tognar á því,við suðu dregst það saman aftur kveðja siggi

Re: Vitið þið hvar svona verkfæri fæst fyrir lítið?

Posted: 22.apr 2012, 17:47
frá Valdi B
þetta fæst að mig minnir í verkfæralagernum og svo líka i n1 minnir mig.... ;)

Re: Vitið þið hvar svona verkfæri fæst fyrir lítið?

Posted: 22.apr 2012, 23:01
frá Helgi Sc.
Þetta fæst hjá N1 og poulsen og ýmsum fleiri verkfærabúða og heitir slaglóð eða slagpúllari í bókum.

Re: Vitið þið hvar svona verkfæri fæst fyrir lítið?

Posted: 23.apr 2012, 19:40
frá Hfsd037
OskarV wrote:Á svona græju til að sjóða lítinn tein við boddíið sem maður skellir svo draghamar á.

Væri kannski hægt að lána græjuna gegn vægu gjaldi ef það er áhugi fyrir því.


Takk fyrir það, ég hef þig í huga ef ég ætla þessa leiðina

Re: Vitið þið hvar svona verkfæri fæst fyrir lítið?

Posted: 24.apr 2012, 08:39
frá jongud
Talandi um beyglur.
Einhversstaðar las ég að hægt sé að rétta beyglur með því að hita þær og snöggkæla svo (t.d. með blautri tusku).
Kannski væri reynandi að prófa það áður en farið er að sjóða eitthvað við boddýið.

Re: Vitið þið hvar svona verkfæri fæst fyrir lítið?

Posted: 24.apr 2012, 08:49
frá dazy crazy
Er ekki séns að komast á bakvið með dollý?

Re: Vitið þið hvar svona verkfæri fæst fyrir lítið?

Posted: 24.apr 2012, 16:45
frá Hfsd037
jongud wrote:Talandi um beyglur.
Einhversstaðar las ég að hægt sé að rétta beyglur með því að hita þær og snöggkæla svo (t.d. með blautri tusku).
Kannski væri reynandi að prófa það áður en farið er að sjóða eitthvað við boddýið.



Sæll, já það er hægt að ná beyglum út með því að hita beygluna vel með hárþurrku og sprauta síðan kælispreyi strax eftir á beygluna,við það poppar beyglan út.
Sjá hér http://www.youtube.com/watch?v=ILVWPzO_ ... ure=fvwrel

En í mínu tilviki er beyglan á horni aftan á skúffunni, hún er vel krumpuð inn og pallurinn gekk smá til þannig þessi aðferð hentar mér ekki aalveg í þetta sinn.

dazy crazy wrote:Er ekki séns að komast á bakvið með dollý?


hvað er dollý? en ég ætla jú að reyna komast á bakvið beygluna, það væri draumur