Síða 1 af 1
Toppgrind á Toyota LC80
Posted: 13.apr 2012, 19:26
frá spurs
Ég hef séð nokkrar toppgrindur sem að mér skilst að séu smíðaðar hér á landi. Vitið þið hverjir eru að smíða þessar toppgrindur og hvað þær kosta. Einnig væri vel þegið ef einhver gæti sent mér myndir af svona toppgrind og sérstaklega hvernig gengið er frá festingunum í rennurnar á
simmib@simnet.is.
Kv. Simmi.
Re: Toppgrind á Toyota LC80
Posted: 13.apr 2012, 21:30
frá Forsetinn
Sæll,
Er þetta ekki bara Briddebild eða KE málmsmíði ? .....
www.facebook.com/media/set/?set=a.11868 ... 439&type=3kv. Halldór
Re: Toppgrind á Toyota LC80
Posted: 14.apr 2012, 08:28
frá spurs
Takk fyrir þetta, góðar myndir.
Re: Toppgrind á Toyota LC80
Posted: 14.apr 2012, 09:04
frá haffij
Re: Toppgrind á Toyota LC80
Posted: 14.apr 2012, 09:24
frá jongunnar
Mér finnst þetta vera flott smíði hjá þér Hafliði.
Re: Toppgrind á Toyota LC80
Posted: 14.apr 2012, 09:57
frá spurs
Þetta eru upplýsingarnar og myndirnar sem mig vantaði, takk. Veist þú hver framleiðir brettakantana sem eru á bílnum?
Re: Toppgrind á Toyota LC80
Posted: 14.apr 2012, 10:23
frá s.f
Re: Toppgrind á Toyota LC80
Posted: 14.apr 2012, 14:38
frá haffij
jongunnar wrote:Mér finnst þetta vera flott smíði hjá þér Hafliði.
Takk fyrir það. Ég var sjálfur mjög ánægður með þetta hjá mér ;)
Jebb, kantarnir eru frá formverk.
Re: Toppgrind á Toyota LC80
Posted: 14.apr 2012, 17:59
frá Forsetinn
Flott smíði hjá þér Hafliði , en hvað viktar svona röragrind?
kv. Halldór
Re: Toppgrind á Toyota LC80
Posted: 15.apr 2012, 06:39
frá haffij
Forsetinn wrote:Flott smíði hjá þér Hafliði , en hvað viktar svona röragrind?
kv. Halldór
Ég viktaði hana nú aldrei en það var létt verk fyrir einn að standa á neðri afturhleranum og vippa henni á toppinn. Klárlega hefði verið skynsamlegra að smíða úr áli en ég hafði ekki græjur eða þekkingu í það.