Síða 1 af 1
svar óskast helst nuna.... um starex
Posted: 04.apr 2012, 16:56
frá denni354
sælir er með starex 99 model 2.5 turbo diesel sem fer ekki i gang ! búinn að dæla upp og allt starta utaf 2 geymum
en allt kom fyrir ekki , hann bara vill ekki í gang!! kemur olia hja spissum
deilið visku ykkar !!!!!!!!!!!!!!!!!
Re: svar óskast helst nuna.... um starex
Posted: 04.apr 2012, 17:00
frá -Hjalti-
Eru glóðakertin að virka? Prufa að gefa honum örlítin startvökva
Re: svar óskast helst nuna.... um starex
Posted: 04.apr 2012, 17:02
frá denni354
-Hjalti- wrote:Eru glóðakertin að virka? Prufa að gefa honum örlítin startvökva
vitum ekki alveg hvort þau virki, öll öryggi eru í lagi
takk fyrir svarið hjalti ætlum að prufa startvökvann allavega vona að hann taki við ser
Re: svar óskast helst nuna.... um starex
Posted: 04.apr 2012, 18:27
frá Freyr
Ef vél snýst og þjappar þá fer hún í gang á startvökva, ef hún gerir það ekki er hugsanlegt að startarinn snúi henni ekki alveg nógu hratt (lélegir geymar) eða þá það er eitthvað meiriháttar að.
Re: svar óskast helst nuna.... um starex
Posted: 04.apr 2012, 19:32
frá vp36
ef þetta er common reail vel þá er einn spíss farin
Re: svar óskast helst nuna.... um starex
Posted: 04.apr 2012, 19:40
frá Þorsteinn
vp36 wrote:ef þetta er common reail vel þá er einn spíss farin
hvernig færðu það út?
Re: svar óskast helst nuna.... um starex
Posted: 04.apr 2012, 19:47
frá HaffiTopp
Þetta er væntanlega ekki commonrail vél verandi svona gamall bíll. Hvað er bíllinn mikið ekinn. Ef hann er mikið ekinn og aldrei verið farið í spíssa getur léleg íring plús ónýt glóðarkerti gert það að verkum að það sé afar erfitt að starta þessum vélum. Prófaðu að sprauta nóg af heitu vatni yfir soggreynina og starta svo með gjöfina í botni. Getur líka prófað að skifta um hráolíusíuna því hún gæti hamlað flæðinu að dælunni þótt þú sjáir koma olíu að spíssum. Síðan geturðu áður en þú startað svissað nokkrum sinnum á til að fá einhvert líf í glóðarkertin.
Kv. Haffi
Re: svar óskast helst nuna.... um starex
Posted: 04.apr 2012, 20:07
frá denni354
ekki comonrail vél....
prófuðum startsprey og það gerði ekkert hann tók ekki einu sinni við sér
við drógum hann i gang og hann gékk flott...... uu altanatortórinn er bílaður og það logar ljós fyrir vatn í hráoliu síuni held að það sé það
getur þetta ekki verið eitthvað tengt þjófavörninni?
fyrri eigandi sagði að bilinn hefði verið leiðinlegur i gang heitur
kv denni
Re: svar óskast helst nuna.... um starex
Posted: 04.apr 2012, 20:19
frá Polarbear
ef þú ert búinn að starta útaf honum á 2 geymum þá borgar sig að skipta um vélarolíuna, hún er orðin löðrandi í díselolíu og hætt að smyrja.
Re: svar óskast helst nuna.... um starex
Posted: 04.apr 2012, 21:24
frá HaffiTopp
Hvernig færðu það út?
Ef þjófavörnin leyfir að bílnum sé startað er það ekki hún, vandamálið hlýtur að lyggja í hituninni, startinu sjálfu eða náttúrulega því að það er vatn í hráolíunni. Skiftu um síuna, settu rakavara í tankinn eða skiftu um í tankinum og reddaðu þér nýjum alternator (eða láttu mæla þennann til að byrja með)
Kv. Haffi
Re: svar óskast helst nuna.... um starex
Posted: 04.apr 2012, 23:09
frá veddi.
Þú þarft að skipta um hráolíusíuna og í inntakinu á olíuverkinu er líka sía sem þarf að hreinsa og ekki láta það blekkja þig þó þú sjáir í gegn um hana heldur hreinsa hana vel því það sest í netið á henni. En samt það sem datt fyrst í hug er hvort það er eitthvað að svissinum ef hann fer strax í gang ef hann er dreginn. Það fer væntanlega ekki á milli mála ef hann er ekki að hita kertin því þá brælir hann gráum reyk fyrst en ætti að taka við sér með spreyi. Væntanlega búinn að mæla það út.
Re: svar óskast helst nuna.... um starex
Posted: 07.apr 2012, 21:56
frá Hrannifox
jæja bílinn kominn í gang og mallar fínt
skiftum um altaneitor fengum ný upptekin úr l200 með vacum dælu og öllu
smelltum gripnum í ásamt að hreinsa upp tengin fyrir hann, smá olia á þeim
skift var um mótoroliu siu og hráoliu síu, ásamt að athuga með þessa síu sem átti að vera á inntakinu
fundum einga.
hann er smá lengi í gang, getur það tengst dísunum? þurfum að athuga hitunina hún virðist þó virka
ljósin í mælaborðinu flökta, og verða skærari á snúning gæti það verið eitthvert jarðsambandið ?
frammljósin flökta ekki, bara ljósin í mælaborðinu.
endilega haldið áframm að tjá ykkur :D
kv Hrannar