Síða 1 af 1
Stolinn Terrano
Posted: 29.mar 2012, 15:30
frá Freyr
Mínum gamla Nissan Terrano jeppa var stolið í vikunni af fólkinu sem keypti hann af mér. Höfum öll augun hjá okkur og ef einhver hefur séð til hans síðan á miðvikudagsmorgun (28.03.) þá vinsamlegast hafið samband við lögregluna í síma 444-1180

Re: Stolinn Terrano
Posted: 29.mar 2012, 16:10
frá HaffiTopp
Djöfullsins óþverraháttur er þetta í fólki. Kúbein og kyndlar og nóg af fólki heim til þeirra segi ég bara :D
Kv. Haffi
Re: Stolinn Terrano
Posted: 29.mar 2012, 17:59
frá AgnarBen
Sá þennan bíl fyrir utan fjölbýlishús í Rofabæ upp í Árbæ í vikunni á þriðjudag/miðvikudag - líklega hefur það verið á þriðjudaginn. Kannski bara kvöldið áður en honum var nappað !
Skömm að þessu ......
Re: Stolinn Terrano
Posted: 29.mar 2012, 19:07
frá s.f
Freyr wrote:Mínum gamla Nissan Terrano jeppa var stolið í vikunni af fólkinu sem keypti hann af mér. Höfum öll augun hjá okkur og ef einhver hefur séð til hans síðan á miðvikudagsmorgun (28.03.) þá vinsamlegast hafið samband við lögregluna í síma 444-1180

.
Re: Stolinn Terrano
Posted: 29.mar 2012, 20:14
frá hrappatappi
... kannski er ég frekar glær en er það ekki eðlileg viðskipti að maður taki með sér hluti sem maður kaupir? eða er þetta kannski bara óheppilega orðað. :) Ég hef allavega augun opin fyrir honum.
Re: Stolinn Terrano
Posted: 29.mar 2012, 20:24
frá Rúnarinn
Re: Stolinn Terrano
Posted: 29.mar 2012, 20:58
frá HaffiTopp
Já ég er farinn að fatta þetta hehe. Fólkið kaupir sem sagt bílinn af þér og honum er svo stolið af þeim (samt ekki af þeim hehehe). Mikið svakalega getur maður verið þykkur stundum ;) Gott að bíllinn fannst og fyrri ummæli mín tek ég til baka og ber við mig að ég misskildi sjálfann mig híhí.
Kv. Haffi
Re: Stolinn Terrano
Posted: 29.mar 2012, 22:23
frá Freyr
Gott hvað hann fanst fljótt og nær óskemmdur. Ég taldi fínar líkur á að hann fyndist fljótt þar sem hann sker sig svo úr á þessum rauðu felgum.
Re: Stolinn Terrano
Posted: 30.mar 2012, 08:53
frá ellisnorra
Nú er þetta NATS alveg óþolandi búnaður þegar maður er að mixa með þetta, hvernig komu þjófarnir bílnum í burtu (eða í gang) án lykilsins?
Fyrir þá sem ekki þekkja til þá er flaga í lyklinum á þessum bíl eins og mörgum nútíma bílnum sem verður að vera örfáa cm frá svissinum og nánast ómögulegt að bypassa, jafnvel þó maður hafi nógan tíma.
Re: Stolinn Terrano
Posted: 30.mar 2012, 11:20
frá ivar
Ég verð nú bara að velta upp þeirri spurningu:
Hver segir að þeir hafi gert þetta án lykils :)