Smá ráð vantar mig


Höfundur þráðar
nonni1
Innlegg: 16
Skráður: 16.feb 2011, 20:34
Fullt nafn: Jón Heiðar Hannesson

Smá ráð vantar mig

Postfrá nonni1 » 08.apr 2013, 21:13

Sælir
Þannig er mál með vexti að ég ek um á 2007 módelinu af Explorer, en það er agalegt brak og brest í framhjólabúnaðnum farþegamegin þegar hann fjaðrar og þegar beygt er til vinstri. Mér gengur ómögulega að finna hvað þetta er,og finn ekkert slit í neinnu eða sé neitt athugavert. Er reyndar ekki farinn að rífa neitt í sundur ennþá. Hafið þið einhverja reynslu af svona draugahljóðum?
Allar ráðleggingar vel þegnar.

takk fyrir



User avatar

hobo
Póststjóri
Innlegg: 2493
Skráður: 31.jan 2010, 17:44
Fullt nafn: Hörður Bjarnason
Bíltegund: 1988 Ford Econoline

Re: Smá ráð vantar mig

Postfrá hobo » 08.apr 2013, 21:21

Spurning að skoða stopparana þar sem sem hjólnafið stoppar á spyrnunum. Klassískt klafabílahljóð. Kannski einhver slithnúður þar sem hægt er að endurnýja/smyrja.
Þekki annars ekki þessa bíla.


Gísli Þór
Innlegg: 93
Skráður: 18.aug 2011, 19:18
Fullt nafn: Gísli Þór Þorkelsson

Re: Smá ráð vantar mig

Postfrá Gísli Þór » 08.apr 2013, 22:02

Þetta er væntanlega spindilkúla sem hlómar svona hjá þér er hún smyrjanleg? ef ekki þá er ekkert annað en að skipta um og keyra Ford glaður :)
Kv Gísli Þór

User avatar

LFS
Innlegg: 579
Skráður: 10.apr 2010, 11:39
Fullt nafn: lúðvik freyr sverrisson
Bíltegund: nissan patrol y60

Re: Smá ráð vantar mig

Postfrá LFS » 08.apr 2013, 22:22

sammála fyrri ræðumanni spindilkúla er mjög liklega valdurinn
1994 nissan patrol 2.8l 44"
1994 toyota hilux 2.4l 38"
1996 toyota tacoma 2.7l 32"
1987 jeep cherokee 4.0l 38"
1988 jeep wrangler 4.2l 31"
1982 chevrolet custom deluxe 6.2l 33"
1976 international scout 5.2l 38"


Til baka á “Almennt spjall”

Tengdir notendur

Notendur á þessu spjallborði: Engir skráðir notendur og 1 gestur