Sælt veri fólkið
Ég verslaði mér felgur í fyrra, fyrir 38" dekk, notaðar, lét sandblása þær og útbjó úrhleypingakrana á þær, gerði og græjaði svo mátaði ég nú sem betur fer felgurnar undir bílinn áður en ég lét setja dekkin á, því að það vantar ca 5 mm á að ég geti snúið felgunni, mér var ráðlagt að nota millilegg eða spacera eins og það var kallað.
en nú spyr ég; er í lagi að nota þessi millilegg, er þetta að reyna meira á legur eða eitthvað annað
KV Kristján
millilegg
Re: millilegg
ég er með svona hjá mér c.a 5mm. hefur ekki verið vesen enþá með brotna bolta eða lausar rær.
þegar ég setti þetta undir þá mæltu þeir á dekkjaverkstæðinu með því að setja lengri bollta til að lenda ekki í basli, það er bara eins og margt annað að maður gerir náttúrulega ekki neitt fyrr en maður lendir í basli ;)
þetta er undir 90 krúser, felgunar eru 14" breiðar aðeins með 9cm backspace þannig að álagið er sennilega talsvert, allavega meira en orginal. ég tékka rærnar alltaf annaðslagið og alltaf eru þær pikkfastar.
sel það samt ekki dýrara en það... væntanlega er mun gáfulegra að setja lengri rær, get ekki ímyndað mér að 5mm auki mikið á slit á legum og þess háttar, svo lengi sem boltanir og rærnar haldi.
mbk
Dabbi

kv
Dagbjartur Vilhjálmsson
Óbreyttur jeppakall
Dagbjartur Vilhjálmsson
Óbreyttur jeppakall
-
- Póststjóri
- Innlegg: 2809
- Skráður: 06.feb 2010, 10:43
- Fullt nafn: Elmar Snorrason (Elli)
- Bíltegund: Patrol
- Staðsetning: Travitsenfirkopfendorf
Re: millilegg
Mikilvægast er bara að hafa plönin algjörlega hrein, bursta með vírbusta og skrapa með sporjárni ef þörf þykir, það er drullan sem er að losa þetta. Svo auðvitað að hafa felguboltana vel smurða, eðlileg herðsla næst aldrei nema allt renni ljúft. Magnað hvað sumir halda að það sé betra að hafa felgurærnar pikkfastar af ryði....
http://www.jeppafelgur.is/
Re: millilegg
Ég sá Hilux um daginn. Ekki að það hafi verið neitt nýtt en felgurnar undir honum voru eitthvað sem ég hef ekki séð áður. Þær voru í mestalagi með 1 cm í backspace!!!!!!!! Miðjurnar voru alveg inn við innri kantinn og smíðaðar þannig að hringurinn fyrir boltagötin var ennþá innar en kanturinn. Ég sagði eigandanum að ég mundi varla þora að bakka þessu út úr skúrnum, hvað þá keyra um á þessu. Honum fannst þetta allt í lagi, viðurkenndi að vísu að hann sliti bolta ( voru tveir slitnir í framhjóli ) en honum fannst svo flott að sjá luxinn á þessu og hann virkaði breiðari. Hann var ekki viss um að það væri þessu að kenna að dekkin slitna meira að innanverðu en utanverðu. Mig langar hinsvegar ekki til að mæta þessum bíl úti á vegum.
Kv Beggi
Kv Beggi
Re: millilegg
Sko í raun er þetta djöfuls fúsk...... enn madur er oft að redda sér, bara passa að þetta leggist allt rétt saman og fylgjast med herslunni. oftast sleppur svona enn það kemur lika fyrir að þetta losni med mis góðum afleiðingum.
Tengdir notendur
Notendur á þessu spjallborði: Engir skráðir notendur og 1 gestur