OME eða Koni dempara í patrol


Höfundur þráðar
ivar
Innlegg: 687
Skráður: 13.aug 2010, 09:03
Fullt nafn: Ívar Örn Lárusson

OME eða Koni dempara í patrol

Postfrá ivar » 13.aug 2010, 09:09

Sælir.

Mér tókst að eyðileggja báða framdemparana mína í einu (með því að hafa samsláttinn of langan) :(
Þannig að núna þarf ég að kaupa mér nýja dempara.
Ég á bágt með að ákveða hvort ég vilji Koni eða OME og heyri mismunandi hluti svo það væri gaman að fá smá input á þetta hér.

Ég er með 38" patrol og vil mjög gjarnan hafa bílinn frekar stífann þannig að þegar maður er að sprauta uppá jökli að bílinn láti sæmilega.
Ég kannaði lauslega hvað möguleikar eru fyrir hendi og þá voru í boði 2x sett af OME dempurum. Aðrir voru fyrir aukna þyngd og örlítið lengra slag en hinir þessu hefðbundnu sem svo margir pattar keyra um á.
Síðan er Koni líka möguleiki og þá er bæði í boði Gas eða Olíudemparar.

Hvað hafa menn um þessu ágætu vörur að segja? Hvor tegundin er skárri og hvort er betra, gas eða olía?

Kv. Ívar



User avatar

frikki
Innlegg: 432
Skráður: 01.feb 2010, 14:59
Fullt nafn: friðrik hreinsson

Re: OME eða Koni dempara í patrol

Postfrá frikki » 13.aug 2010, 11:56

þú færð þér að sjálfsögðu GAS þvi undir álægi fara oliudempararnir að mýkjast ótæpilega
(olian byrjar að freiða)
gasið er til að varna þvi að demparinn hitni eins mikið og þá heldur hann eiginleikum sínum.
Patrol 4.2 44"


Höfundur þráðar
ivar
Innlegg: 687
Skráður: 13.aug 2010, 09:03
Fullt nafn: Ívar Örn Lárusson

Re: OME eða Koni dempara í patrol

Postfrá ivar » 13.aug 2010, 13:07

já, ég hef heyrt þessa skýringu með gas demparana en svo hef ég heyrt 2 sölumenn frá koni tala um olíudempara? Það truflar mig.
Ég átti 2 sett af koni afturdempurum. Annað gas og hitt olíu... koni kall í bílanaust mælti með að ég notaði olíudemparann (man ekki útskýringuna) og svo þegar ég sagði að jeppinn væri breyttur þá fór sölumaðurinn í gær að tala um olíudemparana aftur. (veit reyndar ekki alveg, þeir eru 30% dýrari)

User avatar

frikki
Innlegg: 432
Skráður: 01.feb 2010, 14:59
Fullt nafn: friðrik hreinsson

Re: OME eða Koni dempara í patrol

Postfrá frikki » 13.aug 2010, 13:18

það eru allir demparar oliudemparar gasið er bara til þrysta oliunni saman til að það komi ekki loft í hana(fer hun að freiða) og demparinn missir eiginleikana.
þvi meira gas þvi meiri þrystingur og minni hætta á að hann verði mjúkur og ónothæfur.
kv
Frikki
Patrol 4.2 44"


Höfundur þráðar
ivar
Innlegg: 687
Skráður: 13.aug 2010, 09:03
Fullt nafn: Ívar Örn Lárusson

Re: OME eða Koni dempara í patrol

Postfrá ivar » 13.aug 2010, 14:43

Já, ég áttaði mig á því.
Hinsvegar voru t.d. ein rökin við að velja ekki gasdempara var að þá væri ekki hægt að viðhalda þeim og það væri heldur ekki hægt að skipta um ventla í þeim.
Sjáanlegur munur á "gas" og olíudempurum frá koni er líka þónokkur. (amk þeim tveim sem ég var með um daginn).
Minnir mig þá að sá sem hafi verið olíu (eingöngu) hafi verið umtalsvert meiri um sig.

Svo þetta með að gasdemparar sjóði síður, er þetta ekki bara lítill munur sem munar á? Og hvar liggja þessi mörk.
Ekki það, ef niðurstaðan er gasdemparar frá koni, þá er það fínasta lausn, enda ódýrust :)


Til baka á “Almennt spjall”

Tengdir notendur

Notendur á þessu spjallborði: Engir skráðir notendur og 1 gestur