Múlakvísl af f4x4

User avatar

Höfundur þráðar
Brjótur
Innlegg: 565
Skráður: 31.jan 2010, 23:57
Fullt nafn: helgi j. helgason

Múlakvísl af f4x4

Postfrá Brjótur » 11.júl 2011, 23:20

Ingi minn, þar sem ég er ekki með skrifaðgang á f4x4 þá ætla ég að hrósa þér fyrir þennan póst og styðja þig á móti þessum sveitaköllum sem eru dauðöfundsjúkir að hafa ekki jafnskemmtilega vinnu og við :)
kveðja Helgi

af Árni Alfreðsson » 10 Júl 2011, 21:09

Þessu tengt.

Skil nú ekki alveg þessa móðursýki. Ferðaþjónustan er einn daginn einn aðal stólpi íslensks atvinnulífs, veltir mörg hundruðum milljörðum, að eigin sögn. Næsta dag er hún að fara á hausinn og það allt út af einni brú! Er bókhaldið ekki lagi? Ekki heil brú í þessum málflutningi.

Atvinnugrein sem hvað síst er þekkt fyrir að borga skatta og skyldur vill nú að almenningur borgi brúarsmíð á heimsmettíma sennilega fyrir heimsmet í kostnaði. Nógu dýrt verður þetta samt.

Það er hins vegar allt annað mál hvort menn noti ekki tækifærið og göslist þarna yfir. Kannski hægt að búa til smá ævintýri úr þessu. Muna svo að anda með nefinu og fara varlega.

Kv. Árni Alf.Árni Alfreðsson

Póstar: 125
Skráður: 04 Mar 2009, 11:57
Fullt nafn: Árni Alfreðsson
Félagsnúmer: R4435



User avatar

Höfundur þráðar
Brjótur
Innlegg: 565
Skráður: 31.jan 2010, 23:57
Fullt nafn: helgi j. helgason

Re: Múlakvísl af f4x4

Postfrá Brjótur » 11.júl 2011, 23:22

hérna er svarið hans Inga :)

Re: Múlakvísl
af tingit » 10 Júl 2011, 23:18

Jæja Árni minn,
mig langar til að þakka þér svona almennt séð greinagóð svör og góðar greinar!
En heldurðu virkilega að þjóðin myndi lifa lengi á að þvo beljurassa og rýja rollur?
Það er nú einu sinni svo að ferðaþjónusta telst vera í þríðja sæti á eftir fiskútflutningi og stóriðju í gjaldeyrisöflun, -ef þá ekki í öðru sætinu. Helmingur tekna ferðaþjónustunnar kemur í júní-júlí-ágúst þannig að hætt er við að þetta hlaup komi við kaunin á ferðaþjónustufyrirtækjum vítt og breitt um landið. Er varla á hörmungarnar bætandi þarna sunnan lands eftir Eyjafjallajökulinn, auk þess sem talsvert var um afbókanir við Grímsvatnagosið.
Hvernig sem fer þá þarf að byggja nýja brú og það er hægt að lágmarka skaðann með því að spýta í lófana.
Árni bókhaldsbesserwisser Alferðsson fræðir kannski fávísan um hvaða atvinnugrein er þá þekkt fyrir að borga skatta og skyldur, fyrst að ferðaþjónustan er þekkt fyrir hið gagnstæða!

Ingi óborganlegitingit

Póstar: 259
Skráður: 04 Mar 2009, 11:56
Fullt nafn: Þorvarður Ingi Þorbjörnsson
Félagsnúmer: R2109


Maddi
Innlegg: 68
Skráður: 25.aug 2010, 20:09
Fullt nafn: Marvin Einarsson

Re: Múlakvísl af f4x4

Postfrá Maddi » 12.júl 2011, 00:03

Ekki beintengt þessu, en ætli maður gæti komist yfir hana einhversstaðar á 38" Cherokee?
Ef þessi bráðabirgðabrú verður ekki komin um helgina veit ég ekki hvort ég nenni að þvælast Fjallabaksleiðina einn í bíl.


Til baka á “Almennt spjall”

Tengdir notendur

Notendur á þessu spjallborði: Engir skráðir notendur og 1 gestur