Góðan daginn, vildi kasta einni spurningu á ykkur reynsluboltana varðandi hvaða dekk séu best undir Nissan Navara hjá mér.
Er með núna 35" 12.5 x 17 undir honum, það er eitthvað eftir af munstri á þeim en kubbarnir á þeim eru mismikið slitnir þannig að það er leiðinda hvinur í þeim og smá skopp.
Einhverjar hugmyndir hvaða dekk ég ætti að skoða?
Dekkjaframleiðendur
Tengdir notendur
Notendur á þessu spjallborði: Engir skráðir notendur og 1 gestur