Úrhleypibúnaður


Höfundur þráðar
Haffisteins
Innlegg: 5
Skráður: 12.jan 2022, 23:17
Fullt nafn: Hafsteinn Már Friðriksson
Bíltegund: Defender 38”

Úrhleypibúnaður

Postfrá Haffisteins » 03.jan 2025, 15:42

Sælir Félagar ég er í úrhleypipælingum er með tveggja ventla feægur en þær eru ekki með krana,hafa menn verið að útbúa eitthvað system án grana eða er það alveg nauðsynlegt
Fyrirfram þakkir



User avatar

jongud
Innlegg: 2697
Skráður: 29.mar 2012, 08:39
Fullt nafn: Jón Guðmundur Guðmundsson
Bíltegund: Toyota Tacoma

Re: Úrhleypibúnaður

Postfrá jongud » 04.jan 2025, 11:33

Það er alveg hægt að nota annan ventilinn fyrir úrhleypibúnað með því að græja slönguenda sem skrúfast upp á ventilgengjur, en ventillinn er frekar þröngur, þannig að úrhleypibúnaður yrði hægvirkari, og erfiðara að fylgjast með þrýstingi. Og þá er eftir að græja spangir eða eitthvað fyrir snúningshné.
Ég myndi alltaf vera til í að fórna einum ventli eða bora annað gat á felgu fyrir úrhleypikrana, það þarf ekki einu sinni að sjóða brjóstnippil á felguna, það er nóg að skrúfa þunnan bút af múffu á móti honum inni í felgunni.
Svo er spurning hvort þú þarft ekki hvort eð er að græja eyru á felgurnar fyrir úrhleypispangir. Þá þarf allavega að affelga dekkið að utanverðu til að sjóða þau á og þá er hægt að komast í að bora gat, skrúfa brjóstnippil í og múffubút á móti.


Til baka á “Almennt spjall”

Tengdir notendur

Notendur á þessu spjallborði: Engir skráðir notendur og 1 gestur