er með nissan terrano 2 árg 2001 dísel
hráolían er að stríða mér ef hann gengur hægagang drepur hann á sér ég þarf að pumpa olíu inn á hann ef ég er á keyrslu gengur hann ef mælirinn fer niður fyrir 3/4 byrjar hann að högta og drepur á sér getur einhver sagt mér hvað er um að vera
olíu vandamál
-
Höfundur þráðar - Innlegg: 3
- Skráður: 10.apr 2016, 08:55
- Fullt nafn: Ingvar Pálsson
- Bíltegund: nissan terrano
Re: olíu vandamál
Hljómar eins og ryðgaðar disel lagnir...
-
- Innlegg: 1273
- Skráður: 15.okt 2013, 19:45
- Fullt nafn: Elías Róbertsson
- Bíltegund: F350 38,5"
- Staðsetning: Ólafsvík
Re: olíu vandamál
Sennilega er rörið í tanknum komið með gat og hann byrjar að sjúga loft, þegar að magnið í tankinum fer niður fyrir 3/4.
Fer það á þrjóskunni
-
Höfundur þráðar - Innlegg: 3
- Skráður: 10.apr 2016, 08:55
- Fullt nafn: Ingvar Pálsson
- Bíltegund: nissan terrano
Re: olíu vandamál
takk fyrir ætla að láta athuga þetta .
ég prófaði að setja slöngu þar sem inntakið frá tanknum sem fer í síuna og niður í brúsa með olíu í en hann náði ekki að soga olíuna uppí olíuverk..
spurning.....er dæla í tanknum sumir segja að svo sé ekki í díselnum bara í bensín bílnum
ég prófaði að setja slöngu þar sem inntakið frá tanknum sem fer í síuna og niður í brúsa með olíu í en hann náði ekki að soga olíuna uppí olíuverk..
spurning.....er dæla í tanknum sumir segja að svo sé ekki í díselnum bara í bensín bílnum
Re: olíu vandamál
Það er ekki dæla í tanknum á eldri dieselbílunum, alveg örugglega ekki í 99 árg, ég hef sannreynt það. Hinsvegar sýnir service manual yfir R20 (sem er útlitð á 2000 árg og yngri) dælu í tank fyrir 2,7TDI. Ég veit ekki hvort að það er tilfellið. Auðveld leið til að sjá það er að opna lúgu sem er í afturgólfinu undir teppinu. Svona 20 cm fyrir innan afturhurðina. Þá kemstu beint í inntakið/lokið ofan á olíutaknum. Í það lok (sem kallast líklega "fuel sender unit" á ensku) er eitt rafmagnstengi fyrir olíumælinn. Ef það er dæla í tanknum þá eru tengin tvö.
-
- Póststjóri
- Innlegg: 2809
- Skráður: 06.feb 2010, 10:43
- Fullt nafn: Elmar Snorrason (Elli)
- Bíltegund: Patrol
- Staðsetning: Travitsenfirkopfendorf
Re: olíu vandamál
Stundum er vandamálið líka í síuhúsinu sjálfu, að hann dragi loft þar. Ég man ekki hvort það sé vandamál í terrano en einhverstaðar er það vandamál. Prufaðu að setja slönguna beint í olíuverkið úr flöskunni, passaðu allt hreinlæti bara alveg GÍFURLEGA vel, þú vilt ekki fá drullu í olíuverkið. En þetta gæti verið tilraunarinnar virði, ef þú passar bara hreinlætið þá er þetta ekkert mál og útilokar síu/síuhús/lagnir. Ef bíllinn er í lagi svona þá getur þú rakið þig skref fyrir skref að biluninni. Ef bíllinn lagast ekkert við þetta þá er vandamálið annarstaðar.
Það þarf vart að taka það fram, en alltaf skaltu byrja á að skipta um síu í svona bilanaleit og stundum vilja bílar ekkert nema original síu og fúlsa við "aftermarket" síum.
Það þarf vart að taka það fram, en alltaf skaltu byrja á að skipta um síu í svona bilanaleit og stundum vilja bílar ekkert nema original síu og fúlsa við "aftermarket" síum.
http://www.jeppafelgur.is/
-
Höfundur þráðar - Innlegg: 3
- Skráður: 10.apr 2016, 08:55
- Fullt nafn: Ingvar Pálsson
- Bíltegund: nissan terrano
Re: olíu vandamál
takk innilega fyrir hjálpina ég ætla að athuga þetta sem þið ráðleggið mér
Tengdir notendur
Notendur á þessu spjallborði: Engir skráðir notendur og 1 gestur