Sælir, er einhver á suðvesturlandi sem á og gæti lánað mér nafstút og hub hægramegin að framan í 95 árg. af Patrol. Skrjóðurinn bilaði hjá mér á heimleið uppi á miðjum Þröskuldum og allt sem bendir til þess að það sé farinn hjöruliðskross, eeen ef það er hjólalegan sem er farin en ekki krossinn þá er hún hugsanlega farin svo hressilega að hún hafi skemmt eitthvað útfrá sér og ég nenni varla að fara öðruvísi en að vera viss um að koma skrjóðnum heim, mundi svo skila þessu strax eftir helgina, geri ekki ráð fyrir að þurfa að nota dótið en þetta er dáldið langur rúntur vestur í Gilsfjörð til að eiga á hættu að koma til baka með skottið milli lappanna.
Kv Beggi
Nafstútur/hub
-
- Innlegg: 1697
- Skráður: 01.feb 2010, 08:46
- Fullt nafn: Hrólfur Árni Borgarsson
- Bíltegund: F-250 Powerstroke
- Staðsetning: Akranes
Re: Nafstútur/hub
Sæll það er fullt af patrol köllum þarna fyrir vestan sem eiga þetta líklega til til dæmis "örninn" hérna á spjallinu Kristján Örn Þrastarson hann býr á Neðri Brunná rétt við brúarsporðinn og svo hinumegin við Gilsfjörðinn í Garpsdal býr Hafliði Ólafsson þeir eiga þetta líklega báðir til ef vantar.
Heilagur Henry rúlar öllu.
Re: Nafstútur/hub
jeepcj7 wrote:Sæll það er fullt af patrol köllum þarna fyrir vestan sem eiga þetta líklega til til dæmis "örninn" hérna á spjallinu Kristján Örn Þrastarson hann býr á Neðri Brunná rétt við brúarsporðinn og svo hinumegin við Gilsfjörðinn í Garpsdal býr Hafliði Ólafsson þeir eiga þetta líklega báðir til ef vantar.
Glæsilegt ef svo er, bíllinn stendur í Geiradal svo ég kemst vonandi í samband við einhvern af þessum köllum fyrir helgina
Takk, kv Beggi
Re: Nafstútur/hub
En samt svona til öryggis, einhver sem gæti lánað mér þetta drasl, eða jafnvel selt það??
Kv Beggi
Kv Beggi
Tengdir notendur
Notendur á þessu spjallborði: Engir skráðir notendur og 1 gestur