Víbringur í Grand Cherokee


Höfundur þráðar
AriS
Innlegg: 31
Skráður: 11.aug 2012, 16:31
Fullt nafn: Ari Sigurðarson

Víbringur í Grand Cherokee

Postfrá AriS » 10.sep 2013, 00:45

Góðan og blessaðan.

Ég er að berjast við leiðinlengan víbring í Cherokee-num hjá mér, þetta er '95 árg af bíl og maður finnur aðallega fyrir þessu á 75km hraða og hraðar.

Það er búið að skipta um báða hjöruliðina að framan og eins er ég búinn að láta ballancera dekkin og þeir sögðu ekkert athugavert við þau.

Getur verið komið svona mikið slit í einhverja aðra liði, eða jafnvel drif?

Allar uppástungur vel þegnar.




lecter
Innlegg: 1010
Skráður: 02.des 2012, 02:05
Fullt nafn: Hannibal Sigurvinsson
Bíltegund: kaiser M715 44"

Re: Víbringur í Grand Cherokee

Postfrá lecter » 10.sep 2013, 01:11

hvernig eru drifsköftin og krossar i þeim minn fór að hristast allt i einu en þá var togstöngin farin fekk svakalega jeppa veiki kast allt i einu ,,, fór i smá holu fara yfir allann stýrisbúnað


sukkaturbo
Innlegg: 3133
Skráður: 07.feb 2010, 13:19
Fullt nafn: Guðni Þór Sveinsson

Re: Víbringur í Grand Cherokee

Postfrá sukkaturbo » 10.sep 2013, 08:03

Sæll skoðaðu hliðarstífuna kveðja guðni


Höfundur þráðar
AriS
Innlegg: 31
Skráður: 11.aug 2012, 16:31
Fullt nafn: Ari Sigurðarson

Re: Víbringur í Grand Cherokee

Postfrá AriS » 18.sep 2013, 17:28

Þakka uppástungurnar, og það passar, krossarnir í drifskaptinu eru orðnir slitnir, hvernig er það annars, eru margar gerðir af drifsköptum í þessum bílum, mismunandi á milli vélarstærða og millikassa?


Til baka á “Almennt spjall”

Tengdir notendur

Notendur á þessu spjallborði: Google [Bot] og 1 gestur