Úúúúúúúú hljóð í Kia Sorento
Úúúúúúúú hljóð í Kia Sorento
Sælir spekingar. Ég er með Kia Sorento 2004 2,4 bensín og er búin að vera að leita skýringa á svona einhverskonar úúúúú hljóði síðastliðin 2ár. Ég er búin að láta mér detta ýmslegt í hug og skipta út en hljóðið hverfur ekki. Þetta hljómar svolítið eins og leguhljóð en samt ekki og mér finnst ég finna rosalegan fínan víbring í takti við hljóðið í stýrinu hjá mér er samt ekki alveg viss, hljóðið þagnar um leið og ég legg á hann til hægri og þarf ekki mikið til og kemur svo aftur þegar ég rétti af, eins hverfur það þegar ég fer yfir bungur í veginum. Ég er búin að skipta um legu í hægra framhjóli en ekkert breyttist og eftir það kenndi ég lélegum dekkjum um (þau voru orðin frekar léleg hjá mér sérstaklega hægra framhjólið þar sem það lak aðins og því var það talsvert lélegra en hin dekkin á bílnum) keypti ný dekk en allt við það sama hljóðið heldur alltaf áfram. Ég hef prófað að kúpla frá og láta mótorinn flakka upp og niður í snúning til að útiloka að þetta hljóð geti verið honum eða einhverju tengdu honum að kenna ásamt ýmsu sem mér hefur dottið í hug en er að verða talsvert uppiskroppa með hugmyndir. Er einhver sem getur bent mér á eitthvað til að skoða?
Kveðja Óli
Kveðja Óli
Sent úr Siemens brauðrist
Re: Úúúúúúúú hljóð í Kia Sorento
Stýrisdælan?
Re: Úúúúúúúú hljóð í Kia Sorento
Hef ekki mikið vit á þessu en væri ekki eðlilegra að hljóð úr stýrisdælu fylgdu snúning mótors en hraða bíls og eins af hverju ætti hún að þagna bara þegar beigt er til hægri en ekki vinstri? En jú vissulega hvernig er best að skoða svoleiðis?
Kveðja Óli
Kveðja Óli
Sent úr Siemens brauðrist
-
- Innlegg: 3133
- Skráður: 07.feb 2010, 13:19
- Fullt nafn: Guðni Þór Sveinsson
Re: Úúúúúúúú hljóð í Kia Sorento
Sæll ég hef lent í svipuðu og reyndist það vera lega í afturhjóli. Hél alltaf að þetta væri í upphengju eða framhjóli. Hægt er að fara á verkstæði til að fá þetta greint með einhverskonar hátalarakerfi settur var nemi við hvert hjól og svo var hátalari inn í bíl og hægt að hlusta á einn nema í einu kveðja guðni á sigló
Re: Úúúúúúúú hljóð í Kia Sorento
Ef hljóðið hverfur við að beygja til hægri þá er vinstri legan farin hjá þér. Sýnist sem þú hafir skipt um ranga legu.
Re: Úúúúúúúú hljóð í Kia Sorento
Þú mátt samt eiga það að þetta er frábærlega lifandi og skemtileg lýsing á hljóðinu hjá þér :D
-
- Innlegg: 1164
- Skráður: 05.maí 2011, 14:49
- Fullt nafn: Sveinn Haraldsson
- Bíltegund: Toyota hilux
- Staðsetning: Dalvík
Re: Úúúúúúúú hljóð í Kia Sorento
Myndi segja hjólalegan vinstra megin
Sveinn Haraldsson
Toyota hilux 38"
Toyota hilux 38"
Re: Úúúúúúúú hljóð í Kia Sorento
Get keypt það Guðni en hvaða speki er það að baki? Ég sá fyrir mér hægra framhjól og þegar ég beygi til hægri þá léttist á því hjóli og því gæti hljóð í skemmdri legu þagnað/minnkað en hins vegar þyngist á vinstra hjólinu og því myndi ég halda að ef legan væri skemmd þar myndi hljóðið hækka en ekki hverfa. Ég kem því ekki auga á hugmyndina á bak við vinstri legu með þessa lýsingu og bið þig um að skýra það út fyrir mér.
Og Guðni takk fyrir :)
Kveðja Óli
Og Guðni takk fyrir :)
Kveðja Óli
Sent úr Siemens brauðrist
-
- Innlegg: 1929
- Skráður: 31.jan 2010, 19:27
- Fullt nafn: Sævar Örn
- Bíltegund: Hilux
- Staðsetning: Reykjavik
- Hafa samband:
Re: Úúúúúúúú hljóð í Kia Sorento
rangt því ef þu beygir til hægri þá þyngist á því hjóli.
Samband Íslenskra Suzukijeppaeigenda
http://sukka.is
Skúra- og ferðablogg ásamt öðrum fróðleik
http://sabi.is
http://sukka.is
Skúra- og ferðablogg ásamt öðrum fróðleik
http://sabi.is
Re: Úúúúúúúú hljóð í Kia Sorento
Sæll
Væri ekki einfaldast að opna inn á legurnar og puðra vel af koppafeiti inn í þær. Ef hljóðið breytist ertu kominn á sporið og aðgerðin er frekar einföld.
Kv Jón Garðar
Væri ekki einfaldast að opna inn á legurnar og puðra vel af koppafeiti inn í þær. Ef hljóðið breytist ertu kominn á sporið og aðgerðin er frekar einföld.
Kv Jón Garðar
Re: Úúúúúúúú hljóð í Kia Sorento
Lokuð einnota lega.
Re: Úúúúúúúú hljóð í Kia Sorento
eilífar andskotans hindranir!!!
Re: Úúúúúúúú hljóð í Kia Sorento
Satt satt. Einfaldast, ódýrast og fljótlegast að hækka bara í útvarpinu :)
Re: Úúúúúúúú hljóð í Kia Sorento
Það er ekkert til sem heitir að opna inn á legurnar í þessum bíl ég var búin að reyna að segja þér það Jón Garðar :)
Sævar af hverju segir þú það? Ef ég keyri á fullu og legg svo á bíl til hægri til þess að velta honum myndi hann þá velta á hægri hliðina get ekki séð það gerast en þú, í mínum huga myndi hann fara fyrst upp á vinstri hjólin og velta þaðan á vinstri hliðina. Eins og þessi hann er að beygja til hægri fær reyndar aðeins hjálp eftir að hann er byrjaður að beygja fer upp á vinstri hjólin og veltur http://www.youtube.com/watch?v=Rld8VFtcv0o
Kv, Óli
Sævar af hverju segir þú það? Ef ég keyri á fullu og legg svo á bíl til hægri til þess að velta honum myndi hann þá velta á hægri hliðina get ekki séð það gerast en þú, í mínum huga myndi hann fara fyrst upp á vinstri hjólin og velta þaðan á vinstri hliðina. Eins og þessi hann er að beygja til hægri fær reyndar aðeins hjálp eftir að hann er byrjaður að beygja fer upp á vinstri hjólin og veltur http://www.youtube.com/watch?v=Rld8VFtcv0o
Kv, Óli
Sent úr Siemens brauðrist
Re: Úúúúúúúú hljóð í Kia Sorento
Hafþór eins og ég sagði í upphafi er þetta búið að vera að plaga mig í rúm 2ár og ég er orðin pínu þreittur á þessum hávaða í útvarpinu :)
Kv, Óli
Kv, Óli
Sent úr Siemens brauðrist
Re: Úúúúúúúú hljóð í Kia Sorento
Jæja loksins fundið út úr þessu og ég verð að viðurkenna að Svenni hitti á lausnina. Reyndar önnur skýring à hljóðinu en réttur hlutur. Vintri framhjólalega ný núna í byrjun vikunnar og úúúúúú hljóðið þagnað :)
Kv, Óli
Kv, Óli
Sent úr Siemens brauðrist
-
- Innlegg: 971
- Skráður: 26.maí 2012, 10:42
- Fullt nafn: Gunnar Þórólfsson
- Bíltegund: Daihatsu feroza
- Staðsetning: Akureyri
Re: Úúúúúúúú hljóð í Kia Sorento
ástæðan fyrir því að hljóðið þagnar er af því að þú leggur þunga á leguna þegar þú beigir til hægri og þar með þagnar hljóðið
head over to IKEA and assemble a sense of humor
Re: Úúúúúúúú hljóð í Kia Sorento
Já og nei, þetta er tvöföld lega og þegar ég beigi til hægri færist þunginn á þann hluta legurnnar sem er í lagi en ekki þegar ég beigi til vinstri, málið var að þetta þagnaði líka þegar bíllinn dúaði upp þannig að þetta var kannski ekki bara þungi heldur þungaflutningur ef hægt er að komast þanni að orði um þetta vandamál, en aðalatriðið er að það fannst útúr þessu. Eitt má þó Kian eiga, legan byrjaði að skemmast fyrir allavegana þrem árum og ekki farinn enn sem mér fannst eftirtektarvert.
Sent úr Siemens brauðrist
Tengdir notendur
Notendur á þessu spjallborði: Engir skráðir notendur og 1 gestur