Síða 1 af 1

driflokupælingar á cherokiee

Posted: 19.jan 2012, 19:42
frá Hrannifox
sælir félagar þar sem viskubrunnur ykkar hérna á spjallinu er svarthol virðist vera
eða ég bara með svona einfaldar spurningar enþá enda svosem nýliði í þessu alvöru
jeppa brasi..... margir i kringum mig vilja ekki viðurkenna sukku á 33 '' sem jeppa
heldur einungis yfirbyggt fjórhjól á stórum dekkjum.

Þar sem eg þoli ekki er ílla við þetta auto loku drasl
þá var ég að pæla að setja manual driflokur á bilinn ( svo ég sofi betur)
eitthver sem hefur farið i svoleiðis dót eða á maður bara að halda áfram að
sofa ílla útaf þessum pælingum mínum.

allar upplýsingar eru meira en vél þegnar sambandi við loku dæmið.

Eins með þverstífuna þar sem ég hef hugsanlegan aðgan að suðuvélum og dóti
þá var ég að pæla með fóðringu þar sem kúlan á að vera hvernig er að smiða
festingu þar fyrir stífuna sjálfa með fóðringu, er ekki beint bestur i smíða vinnu
langt því frá en jæja bjarga mér ef ég veit nokkurnveginn hvað ég er að gera og
pæli nógu mikið í þessu öllu samann hugsa fyrir flestum mistökum áður en eg geri þau.

ætla að prófa að setja stýrisenda þarna þar sem það kostar mig aðeins 4000 þús kall i mestalagi
eins langar mig líka að prófa fóðringar dæmið ef stýrisendinn kemur ílla út, eitthver sem hefur
sett styrisenda í staðinn fyrir kúluna?

Hrannar

Re: driflokupælingar á cherokiee

Posted: 19.jan 2012, 19:55
frá Stebbi
Það eru ekki auto driflokur á Cherokee og það er fooooooookdýrt að setja driflokur á þá. Það þarf að breyta eitthvað útfærsluni á hjólalegunum þegar þetta er gert og settið kostaði upp undir $1000 þegar ég athugaði það á sínum tíma. Ef þú vilt fá lokur að framan þá borgar sig að finna aðra framhásingu undir bílinn.

Re: driflokupælingar á cherokiee

Posted: 19.jan 2012, 20:01
frá LFS
hvaða kosti hefur það að hafa lokur eg er með lokur á pattanum hja mer og þær fara ALDREI úr lock se bara ekki ástæðu til

Re: driflokupælingar á cherokiee

Posted: 19.jan 2012, 20:11
frá Hrannifox
49cm wrote:hvaða kosti hefur það að hafa lokur eg er með lokur á pattanum hja mer og þær fara ALDREI úr lock se bara ekki ástæðu til


veit ekki ég hef alltaf verið með manual lokur og þar af notað þær free og lock
kannski spurning um trúarbrögð.


haha jááááá stebbi ég held ég haldi mig bara við þetta system sem er nú þegar
og noti peninginn frekar i oliu eyðslu og dekkjakostnað

Re: driflokupælingar á cherokiee

Posted: 19.jan 2012, 20:17
frá Stebbi
Hrannifox wrote:haha jááááá stebbi ég held ég haldi mig bara við þetta system sem er nú þegar
og noti peninginn frekar i oliu eyðslu og dekkjakostnað


Það er hægt að eyða töluverðum tíma á fjöllum fyrir $1000. :)

Re: driflokupælingar á cherokiee

Posted: 19.jan 2012, 20:28
frá Þorri
http://www.pirate4x4.com/tech/billavist ... idAxle.htm Hér sést hvernig hægt er að setja driflokur á cherokee og reyndar sýnir hann líka hvernig á ekki að breita framfjöðrun á sama bíl en þetta er útlendingur og veit ekki betur.

Re: driflokupælingar á cherokiee

Posted: 19.jan 2012, 20:40
frá Kiddi
Þú segir að þér sé illa við auto lokur. Þá getur þú huggað þig við að það eru hvorki ekki Auto lokur á Cherokee, og ekki heldur manual lokur. Það eru engar driflokur, hjólnafið er bara boltað beint á öxulinn og ef þú vilt (einhverra hluta vegna) setja lokur þá kostar það eins og Stebbi segir um $1000.

Re: driflokupælingar á cherokiee

Posted: 26.jan 2012, 17:19
frá Hrannifox
Kiddi wrote:Þú segir að þér sé illa við auto lokur. Þá getur þú huggað þig við að það eru hvorki ekki Auto lokur á Cherokee, og ekki heldur manual lokur. Það eru engar driflokur, hjólnafið er bara boltað beint á öxulinn og ef þú vilt (einhverra hluta vegna) setja lokur þá kostar það eins og Stebbi segir um $1000.


haha lokulaust hellviti þetta er allavega betri búnaður en auto loku draslið! það er min skoðun
eins fyrst ég er að masa hérna hvernig er með hjólalegur er mikið vesen á þeim ?

Re: driflokupælingar á cherokiee

Posted: 26.jan 2012, 18:08
frá Stebbi
Eina vesenið sem er á þeim er að þetta eru lokaðar legur (sealed unit) og það er ekki hægt að herða uppá þeim fyrir ferð, gæti verið gott að hafa eina með sér til vona og vara.

Re: driflokupælingar á cherokiee

Posted: 26.jan 2012, 20:37
frá juddi
Á sumum bílunum er annar öxulinn aftengdur með tengimúffu á miðju rörinu vacum stýrt dót og hásingin ekki eins sterk fyrir vikið

Re: driflokupælingar á cherokiee

Posted: 28.jan 2012, 12:29
frá Hrannifox
Stebbi wrote:Eina vesenið sem er á þeim er að þetta eru lokaðar legur (sealed unit) og það er ekki hægt að herða uppá þeim fyrir ferð, gæti verið gott að hafa eina með sér til vona og vara.


meinar þá er að splæsa í nýjar legur i bilinn til að hafa þetta gott, já held það sé málið að vera með eina
með sér þegar maður fer uppá fjöll. var að skoða felgur með orginal backspacinu fara þær ekki betur
með legurnar ?

reikna með að minn sé ekki með þessu vacum dóti til að kúpla út einum öxli sem betur fer held ég bara

þakka svörin:)