Sælir félagar,
ég hef stundum séð þegar menn eru að auglýsa breytta(Grand) Cherokee að þeir eru með lausa aukatanka aftur í skotti sem hægt er að taka úr. Langaði að forvitnast um hvað menn væru að nota í þetta, hvort hægt væri að nota eitthvað fjöldaframleitt eða hvort þetta væri sérsmíðað og þá hvar. Heyrði að einhverjir stórir bátatankar hefðu t.d. verið notaðir.
Einnig er ég forvitinn hvernig menn eru að dæla úr slíku, varla þorandi að skjóta með lofti þegar tankurinn er inni í bílnum, rafmagnsdæla kannski?
Þakka,
Sveinn
Lausir aukatankar í Cherokee
-
- Innlegg: 165
- Skráður: 12.des 2010, 15:42
- Fullt nafn: Davíð Freyr Jónsson
Re: Lausir aukatankar í Cherokee
Ég hef séð nokkra c.a.100 lítra tanka aftur í skotti... ýmist úr plasti eða áli..
einn var með lögn beint niður í orginal tankinn og krana á milli....
sumir eru með rafmagnsdælur og dæla yfir í orginal tankinn...
ég ætla til bráðabirgða að vera með 100 lítara tank aftur í grand smíða hillu yfir til að loka af...,,, og verð með aðra orginal bensíndælu í aukatanknum í skottinu... og er mælir og lagnir t tengt inná orginal lagnir... allavega er maður með auka innspýtingardælu þannig að maður ætti ekki að vera stopp útaf dælu sem hrinur....
en eins og þú skrifaðir þá held ég að það sé ekki sniðugt að dæla á milli með lofti nema þú sért með eitthvað temprað loftið inná tankinn...
kv.
Davíð Freyr

Jeep Grand Cherokee ZJ '98 5.9L 46"
VW Golf '99 1.6L
Yamaha WR450F 2004
Subaru Impreza 2.0L SELDUR!!!
GMC Sierra 2500 6.0L vortec SELDUR!!!
Nissan Patrol Y60 2.8L 38" SELDUR!!!
Trans Am '98 LS1 5.7L Grár SELDUR!!!
Jeep Grand Cherokee ZJ '98 5.9L 46"
VW Golf '99 1.6L
Yamaha WR450F 2004
Subaru Impreza 2.0L SELDUR!!!
GMC Sierra 2500 6.0L vortec SELDUR!!!
Nissan Patrol Y60 2.8L 38" SELDUR!!!
Trans Am '98 LS1 5.7L Grár SELDUR!!!
Re: Lausir aukatankar í Cherokee
Ég hef aðeins verið að skoða þetta fyrir Cherokee XJ, það eru til mjög góðir plasttankar í Vélasölunni, stærsti tankurinn sem kom til greina var ílangur, minnir að málin á honum hafi verið ca 110x30x30cm. Þeir kosta reyndar örugglega slatta, gleymdi alveg að spyrja þegar ég hringdi.
kv/AB
kv/AB
Re: Lausir aukatankar í Cherokee
Takk fyrir það. Hafa menn að öðru leyti verið að smíða þetta, þ.e. fyrir utan tanka úr Vélasölunni? Tékka annars á því, væri nice að fá bara eitthvað tilbúið í þetta.
Re: Lausir aukatankar í Cherokee
svopni wrote:Ég var í vélasölunni um daginn og sá þar tankin sem Agnar talar um. Hann kostar rétt rúmar 11.000 með VSK. Þeir eru með mjög sniðuga tanka þar og nokkrar gerðir (plast).
Voru þeir ekki dýrari en þetta! Flottast væri að setja upp sjálfrennandi rennsli með krana á milli tankanna, ekkert rafmagnsvesen. Ætla að fara að skoða þetta.
svopni wrote:En vitið þið hvort menn hafa verið að mixa slöngu úr aukatanki/brúsa og bara í áfillingarstútinn og notað loft inná slönguna til að dæla? S.s mynda bara sog í slöngunni til að fá flæði.
Ertu að meina svona ;-) --> Tekið úr albúminu hjá Frey á Facebook

Re: Lausir aukatankar í Cherokee
Eins og sést á myndinni nota ég loftþrýsting til að dæla úr tunnunni. Ég myndi ekki þora að setja þrýsting á ílát sem er inní bíl. Það er alltaf möguleiki á að ílátið fari að leka og það er ekkert gaman að fá nokkra lítra af bensíni í gólfteppið, hef b.t.w. lent í því og henti í kjölfarið hluta úr teppinu. Ef tankurinn er fastur inni í bílnum myndi ég nota hæðarmuninn til að láta leka á milli ef það er hægt en annars rafmagnsdælu.
Freyr
Freyr
Re: Lausir aukatankar í Cherokee
Já, það er náttúrulega snjallt að gera þetta svona, en ég hef svona verið að velta fyrir mér útfærslum á tank sem væri stærri, helst svona 100L, inni í bíl, og einhverskonar rennsli á milli. Þá væri maður laus við þetta brúsavesen. Ætli pælingarnar hans Agnars séu ekki málið.
Re: Lausir aukatankar í Cherokee
Kannski rétt að taka fram að þetta er mjög sniðugt system hjá Frey, ég var með honum uppi á jökli og hann tankaði 60L á minni tíma en ég 20L.
-
- Innlegg: 1930
- Skráður: 31.jan 2010, 19:27
- Fullt nafn: Sævar Örn
- Bíltegund: Hilux
- Staðsetning: Reykjavik
- Hafa samband:
Re: Lausir aukatankar í Cherokee
Mjög góð hugmynd að trukka lofti inn á þetta, þó myndi ég hylja ílátið með eldvarnarteppi eða álíka í ljósi þess að þegar loft blandast bensíninu myndast gufur sem eru ofboðslega eldfimar, þessar gufur valda sprengingu í ílátinu og þið vitið rest.
hafið amk. varann á, þó þetta sé fljótleg og auðveld aðferð þá er hún líka hættuleg.
hafið amk. varann á, þó þetta sé fljótleg og auðveld aðferð þá er hún líka hættuleg.
Samband Íslenskra Suzukijeppaeigenda
http://sukka.is
Skúra- og ferðablogg ásamt öðrum fróðleik
http://sabi.is
http://sukka.is
Skúra- og ferðablogg ásamt öðrum fróðleik
http://sabi.is
-
- Póststjóri
- Innlegg: 2809
- Skráður: 06.feb 2010, 10:43
- Fullt nafn: Elmar Snorrason (Elli)
- Bíltegund: Patrol
- Staðsetning: Travitsenfirkopfendorf
Re: Lausir aukatankar í Cherokee
Sævar Örn wrote:Mjög góð hugmynd að trukka lofti inn á þetta, þó myndi ég hylja ílátið með eldvarnarteppi eða álíka í ljósi þess að þegar loft blandast bensíninu myndast gufur sem eru ofboðslega eldfimar, þessar gufur valda sprengingu í ílátinu og þið vitið rest.
hafið amk. varann á, þó þetta sé fljótleg og auðveld aðferð þá er hún líka hættuleg.
Hvað á eldvarnarteppið að gera ? :)
http://www.jeppafelgur.is/

Hvaða gufur myndast við það að trukka þrýstilofti á tunnuna sem myndast ekki annars???? Skil ekki alveg hvað þú átt við með þessu. Ég er þeirrar skoðunnar að þetta sé einmitt mjög örugg leið, bensíntunnan fer aldrei inn í bíl og það kemur ekkert rafmagn nálægt bensíninu. Þar að auki eru engar gufur kringum ílátið heldur bara inní því, einu gufurnar koma úr áfyllingastútnum á bílnum við það að bensínið fer á tankinn og þrýstir loftinu upp um stútinn en það eru nákv. jafn mikil bensíngufa og kemur við það að hella á hann úr brúsa eða dæla á hann á bensínstöð.
Freyr
Re: Lausir aukatankar í Cherokee
svopni wrote:Hugmyndin mín er reyndar aðeins öðruvísi. Þá notar maður svera bensínslöngu, t.d 1" slöngu. Svo c.a 40-50 cm frá endanum sem fer í bílinn þá stingur maður grennri slöngu t.d 10mm c.a 10 cm inní bensínslönguna og lætur hana vísa í rennslisáttina. Þá myndast vacuum og þú færð rennsli. Þá er maður laus við sprengihættu og þessháttar.
Ég var að tala við bróðir minn sem er að vinna í vélasölunni og hann sagði að ég hefði öruglega lesið vitlaust á verðmiðann. Þeir eru víst eitthvað dýrari þessir tankar. Hann hélt að þessi umræddi tankur væri á um 30.000.
Sé ekki alveg hvernig þetta á að ganga, ertu til í að útskýra þetta betur? Hvernig á 10mm slangan að mynda vacum?
-
- Innlegg: 1930
- Skráður: 31.jan 2010, 19:27
- Fullt nafn: Sævar Örn
- Bíltegund: Hilux
- Staðsetning: Reykjavik
- Hafa samband:
Re: Lausir aukatankar í Cherokee
Munurinn er sá að þegar lofti er trukkað inn í rými fullu af bensíni verður blandan margfalt eldfimari.
Ég veit þetta er langsótt en við erum að tala um að þú getur hent eldspýtu ofan í bensínbrúsa og líkur eru á því að slokkni í eldspýtunni.
Segjum þú trukkir 2 pundum inn í brúsann, það myndi duga til að mynda fullkomna sprengju þegar brúsinn væri tæplega hálfur.
Í fullkomnum heimi er þetta auðvitað óhugsandi en ég vill allavega að menn hafi varann á og séu ekki í flíspeysum meðan þeir nota þessa aðferð.
Þessi aðferð er þekkt við mótorolíutunnur sem hellt er af bílum í, þegar þær eru fullar er yfirleitt trukkað þrýsting á til að færa í stærra ílát t.d. 1000l olíutank, fjöldamörg slys hafa orðið úti í heimi vegna þess að ekki er nægilega gætilega farið kringum eldfimar gufur.
kannski er þetta ofsahræðsla í mér en mér þykir eðlilegt að hafa þetta í huga, eldvarnarteppi eða yfirlögn var hugmynd mín að hylja samskeyti betur, menn eiga það til að gleyma sér með sígaretturnar sínar ofl ofl...
munið bara það er aldrei of varlega farið, sérstaklega í kringum þessu hættulegu efni,
Ég veit þetta er langsótt en við erum að tala um að þú getur hent eldspýtu ofan í bensínbrúsa og líkur eru á því að slokkni í eldspýtunni.
Segjum þú trukkir 2 pundum inn í brúsann, það myndi duga til að mynda fullkomna sprengju þegar brúsinn væri tæplega hálfur.
Í fullkomnum heimi er þetta auðvitað óhugsandi en ég vill allavega að menn hafi varann á og séu ekki í flíspeysum meðan þeir nota þessa aðferð.
Þessi aðferð er þekkt við mótorolíutunnur sem hellt er af bílum í, þegar þær eru fullar er yfirleitt trukkað þrýsting á til að færa í stærra ílát t.d. 1000l olíutank, fjöldamörg slys hafa orðið úti í heimi vegna þess að ekki er nægilega gætilega farið kringum eldfimar gufur.
kannski er þetta ofsahræðsla í mér en mér þykir eðlilegt að hafa þetta í huga, eldvarnarteppi eða yfirlögn var hugmynd mín að hylja samskeyti betur, menn eiga það til að gleyma sér með sígaretturnar sínar ofl ofl...
munið bara það er aldrei of varlega farið, sérstaklega í kringum þessu hættulegu efni,
Samband Íslenskra Suzukijeppaeigenda
http://sukka.is
Skúra- og ferðablogg ásamt öðrum fróðleik
http://sabi.is
http://sukka.is
Skúra- og ferðablogg ásamt öðrum fróðleik
http://sabi.is
-
- Póststjóri
- Innlegg: 2809
- Skráður: 06.feb 2010, 10:43
- Fullt nafn: Elmar Snorrason (Elli)
- Bíltegund: Patrol
- Staðsetning: Travitsenfirkopfendorf
Re: Lausir aukatankar í Cherokee
Freyr wrote:
Sé ekki alveg hvernig þetta á að ganga, ertu til í að útskýra þetta betur? Hvernig á 10mm slangan að mynda vacum?
Hugmyndafræðin heitir jector (ekki klár á stafsetningu). Ég er samt ekki alveg viss um að það sé svona einfalt eins og svopni lýsir, en það getur þó vel verið.
Flestir blöndungar virka svona, loftið sem rennur í gegnum þá sogar bensín úr forðabúri blöndungsins og eftir því sem ferðin eykst á loftinu (fleiri rúmmetrar á x tíma) því meira bensín.
http://www.jeppafelgur.is/
Re: Lausir aukatankar í Cherokee
Þú ert þá að tala um svipaða virkni og í flækjum? Setur loftþrýsting á grönnu slönguna og streymið úr henni myndar sog sem virkar í sömu átt og loftstreymið? Ég á afar bágt með að trúa því að það myndist nægt sog til að sjúga upp bensínið, til þess held ég að þurfi mjög mikið loft og á mikilli ferð.......
Freyr
Freyr
Tengdir notendur
Notendur á þessu spjallborði: Google [Bot] og 1 gestur