Síða 1 af 1

Varahlutir í WJ

Posted: 07.apr 2016, 17:27
frá emilth
Sælir drengir!

Er með 2004 WJ Grand Cherokee sem tók uppá því að frussa vatni yfir allan vélarsal hjá mér í dag. Er að biðja til guðs að það sé ekki heddpakkning farin en mesta bleytan virðist vera að framan sem að gefur til kynna að vatnskassinn eða einhver hosa sé farin hjá mér. Er eitthvað þekkt að þetta sé að gefa sig í þessum bílum?

Annars er ég að spá hvort að einhver hér sé að rífa svona bíl og eigi eitthvað af þessu mögulega til fyrir mig? Þetta er 4,7 v8 vélin í honum

Re: Varahlutir í WJ

Posted: 07.apr 2016, 23:23
frá Stebbi
Vatnskassabotnarnir í þessum bílum verða eins og Corn Flakes með árunum, dugar að horfa stíft á þá til að gera gat. Minn gamli sprengdi efri vatnskassahosu en það fer ekkert framhjá manni þegar hún fer. Vatnskassann borgar sig að kaupa nýjan, ég fékk minn í gegnum ljónsstaði á helmingsverði miðað við úr hillunum hérna heima.

Re: Varahlutir í WJ

Posted: 07.apr 2016, 23:39
frá Freyr
Sæll

Ég á vatnskassa fyrir þig. Kemur úr '99 4,7 WJ Cherokee. Færð hann á 10.000

Kv. Freyr S: 661-2153

Re: Varahlutir í WJ

Posted: 07.apr 2016, 23:47
frá kroni
99 árg passar ekki í 2004 árg, þetta skiptist 99-2000 og 2001-2004 út af breytingu á kæliviftu.

Re: Varahlutir í WJ

Posted: 08.apr 2016, 19:15
frá emilth
Þakka frábær svör drengir og verst að geta ekki notað kassan sem Freyr bauð! en ég á enn eftir að rífa þetta og skoða en allt hallast að vatnskassanum. Mesta vatnið er framaná mótornum og frussast vel yfir viftureim með tilheyrandi vandræðum þar!

Re: Varahlutir í WJ

Posted: 09.apr 2016, 20:51
frá emilth
Jæja! Komin nokkuð góð skýring á þessu! Hef ansi rökstuddan grun um að vatnsdælan sé farin hjá mér, frussar upp á samskeytum við viftureimahjólið framaná miðjum mótor og fylgja með þónokkur læti.
Hefur einhver reynslu af því að skipta um þetta? Og ef svo er, er mikið mál að gera það og þarf að rífa allt úr fyrir framan hana til að ná dælunni úr?

Re: Varahlutir í WJ

Posted: 10.apr 2016, 10:55
frá Sævar Örn
Það er ekki óalgengt að vatnsdæla fari að leka á þessum bílum, það eru greinargóð myndbönd á youtube step by step hvernig þetta er gert í bílskúr með lágmarksverkfærum :)

Þetta kom upp ef ég leitaði að WJ Cherokee Water pump

https://www.youtube.com/results?search_ ... water+pump

Re: Varahlutir í WJ

Posted: 04.maí 2016, 16:30
frá emilth
Takk fyrir þessi svör drengir, ég skipti um þetta á örstuttum tíma og virkar fínt en í staðinn held ég að vatnskassinn hjá mér sé að stríða líka eða eitthvað tengt honum þarna fremst í húddinu. Bíllinn tekur inn smá loft og dropar af honum þegar er drepið á honum en ofhitnar ekki og virðist ekki leka þegar hann er í gangi. Nú þarf bara að fara að skoða það en auðvitað eru hugmyndir vel þegnar!