Síða 1 af 1

Brettakantar

Posted: 20.sep 2015, 23:44
frá eirikuringi
Sælir, mig vantar upplýsingar.

Nú er ég búinn að vera að spyrjast fyrir og ég get ekki séð að það sé til 44" brettakanntar fyrir Jeep WJ. En það eru hinsvegar auðvitað til fyrir 38". Eru þá þeir bílar sem eru á 44" bara með 38" kanta eða er búið að breyta þeim fyrir 44"?

Re: Brettakantar

Posted: 21.sep 2015, 00:41
frá biturk
Breikka menn þá ekki bara?

Re: Brettakantar

Posted: 21.sep 2015, 00:55
frá Kiddi
Ég veit til þess að Formverk hefur skaffað 44" kanta á WJ en það getur vel verið að þeir hafi breytt þeim eitthvað.

Re: Brettakantar

Posted: 12.okt 2015, 03:18
frá eirikuringi
Takk fyrir svörin, var fyrst að sjá þau núna. Ég ætla að hafa samband við for verk og spyrja þá útí þetta. Mér sýnist á öllu að þetta verði lang dýrasti hluturinn í projectinu hjá mér.