Síða 1 af 1
					
				JGC þvermóðska, hjálp.
				Posted: 27.aug 2014, 20:18
				frá magnum62
				Sælir. Nú er ég alveg að verða ráðþrota og óska eftir fleiri hugmyndum.  Þannig er að JGC  ´93, minn vill ekki starta.
 Það sem ég hef gert er: skipt um sviss ekki svissbotn, sameinað og yfirfarið tvo startara og komist að því að sá sem ég nota er í lagi, sett beint straum á hann og þá er allt eðlilegt en svo þegar hann er kominn í bílinn þá snýst hann stundum en skýtur ekki fram bendix, bíllinn tekur ekkert við sér, hlaðið og skipt um geymi, endurnýjaði plús-geymaskóinn, athugað öll öryggi og relay fram í húddi. Sé ekki neitt athugavert við plús kapal og stýrisstrauminn á startarann. Búinn að reyna að starta honum í Hlutlausum. 
Með von um góð ráð og lausnir.
fyrirfram þökk.
MG
			 
			
					
				Re: JGC þvermóðska, hjálp.
				Posted: 27.aug 2014, 21:42
				frá Freyr
				Mæla hvort það komi stýristraumur að honum þegar startað er, ef já, kemur straumur inn á stóra pólinn á honum? Skoða jarðsamband og ef allt þetta er í lagi þá er startarinn bilaður.
			 
			
					
				Re: JGC þvermóðska, hjálp.
				Posted: 27.aug 2014, 22:26
				frá uoa
				Stöðuskynjari á skiptingu.
			 
			
					
				Re: JGC þvermóðska, hjálp.
				Posted: 28.aug 2014, 01:06
				frá magnum62
				uoa wrote:Stöðuskynjari á skiptingu.
 Já takk Unnsteinn, það nefndu þeir í Bíljöfur líka  Hvar er þessi stöðuskynjari staðsettur?
Freyr wrote:Mæla hvort það komi stýristraumur að honum þegar startað er, ef já, kemur straumur inn á stóra pólinn á honum? Skoða jarðsamband og ef allt þetta er í lagi þá er startarinn bilaður.
já takk Freyr geri það.
 
			
					
				Re: JGC þvermóðska, hjálp.
				Posted: 02.sep 2014, 01:57
				frá magnum62
				Nú er ég búinn að prófa að tengja á startarann beint en ekkert gerðist. En skrítið hann snýr á fullu með tengingunum í bílnum, þegar hann er í Neutral en ekki í Parkin.  Vill samt ekki starta.  Á eftir að skipta um svissbotn en það er svo mikið maus að ég held.  ??  Hvar er park skynjarinn í þessum bílum?
			 
			
					
				Re: JGC þvermóðska, hjálp.
				Posted: 14.sep 2014, 03:43
				frá magnum62
				Jæja spjallverjar.  Nú er ég búinn að mæla og prófa helling af atriðum sem mér hefur verið bent á í þessu máli.  Næst er að prufa annann startara og því ÓSKA ég eftir ef að einhver getur lánað mér hann í smá stund, bara til að prófa.?  Þetta er 4.0 ltr 6cyl vélin.
			 
			
					
				Re: JGC þvermóðska, hjálp.
				Posted: 24.sep 2014, 09:49
				frá magnum62
				Góðan daginn. Nú er bíllinn kominn í viðgerð hjá Bíljöfur og eru þeir búnir að fá staum á startarann, var svosem búinn að því sjálfur, en nú vilja þeir fá annann startara ( sem ég óska eftir ) því þeir segja að orginal startarinn nái ekki fram í startkransinn ..... bendixinn skýst ekki nógu langt fram.... ????  Þetta er orginal startari sem ég er búinn að fara með í viðgerð í Tæknivélar og var jafnframt búinn að yfirfara sjálfur, (reyndar sameinaði í einn úr tveimur úr báðum bílunum mínum)  Hvernig getur staðið á þessu spekingar góðir?
			 
			
					
				Re: JGC þvermóðska, hjálp.
				Posted: 24.sep 2014, 10:31
				frá magnum62
				Jæja þeir fundu út úr þessu, en ég hafði víst sett startarann vitlaust saman svo að hann umpólaðist. Sem betur fr er ekkert ónýtt og bílinn því kominn í gang.  :)