Síða 1 af 1

Nýtt miðstöðvarstýribox-minni blástur

Posted: 12.feb 2013, 12:49
frá Bjorn
Sæl
Er með Grand cherokee overland 2004.
Var að setja í hann nýtt stýribox og tengi fyrir miðstöðvarhitablásarann. Það sem var í honum hafði bráðnað og ég keypt nýtt hjá H. Jónsson (um 30 þ. kall). Þetta nýja er öðruvísi útfært og á að vera betrumbætur á hálf gallaðri framleiðslu. Eftir að ég setti þetta í er blásturinn mun kraftminni. Þekkir þetta einhver ? Getur verið að lausnin hjá Chrysler sé einfaldlega að hleypa minni straumi gegn til að hindra að tengi bráðni.
Eða hef ég klúðrað þessu ?

kv.
Björn

Re: Nýtt miðstöðvarstýribox-minni blástur

Posted: 12.feb 2013, 17:51
frá muggur
Talaðu við þá í Bílaverkstæðinu Ás. Þeir eru snillingar í svona rafmagnsdúlleríi eins og er í þessum 'jeppa' þínum.

Re: Nýtt miðstöðvarstýribox-minni blástur

Posted: 13.feb 2013, 10:10
frá Bjorn
Þakka þér Muggur fyrir holl ráð. Ég fór til Geir í Ás í morgun en hann var því miður upptekinn. Renndi við hjá snillingunum í Biljöfur. Þeir horfðu á mig stórum augum og spurðu hvort þeir hjá H. Jónsson hefðu ekki sagt mér að þessi stýring væri vitlaus tengd frá framleiðanda. Þeir víxluðu vírunum, rauðan á svartan og svartan á rauðan, tók 2 mínútur, enginn reikningur og málið dautt.

kv.
Björn