Hraðamæla vesen í Gran Cherokee


Höfundur þráðar
Sigfús
Innlegg: 12
Skráður: 18.júl 2010, 12:11
Fullt nafn: Sigfús Heiðar Árdal

Hraðamæla vesen í Gran Cherokee

Postfrá Sigfús » 05.jún 2011, 11:23

Vesenið lýsir sér svona, Hann er altaf í botni og þá meina ég alveg í botni málin vísar niður. svo fer hann stundum af stað þegar maður fer yfir ákveðin hraða þá sínir hann kanski 140 eða einkvað svoleiðis og svo allt í einu er hann réttur, svo slær maður af og þá fer hann í botn aftur. Virðist fara af stað þegar maður gefur hraustlega í. Hvað haldið þið um þetta ???????
Kv Heiðar.




Gaui
Innlegg: 1
Skráður: 14.aug 2011, 16:25
Fullt nafn: Guðjón Emil Arngrimsson

Re: Hraðamæla vesen í Gran Cherokee

Postfrá Gaui » 13.sep 2011, 05:05

Blessaður.
Spurningin er hvort þú sért búinn að leysa vandamálið. Ég er með hliðstætt vandamál. Ég er búinn að athuga tenginguna inn á millikassann, og hún virðist í lagi. Þannig að áður en ég fer að rífa mælaborðið úr, til þess að komast að mælinum sjálfum, langaði mig til þess að spyrja þig hvort þú hafir fundið meinið.
Kv.
Gaui.

User avatar

Kiddi
Innlegg: 1160
Skráður: 02.feb 2010, 10:32
Fullt nafn: Kristinn Magnússon
Bíltegund: Wrangler 44"

Re: Hraðamæla vesen í Gran Cherokee

Postfrá Kiddi » 13.sep 2011, 09:48

Hraðamælisskynjarinn við millikassann er gagagúgú... kom fyrir hjá mér í Subaru og lýsti sér nákvæmlega eins!


Til baka á “Jeep”

Tengdir notendur

Notendur á þessu spjallborði: Engir skráðir notendur og 0 gestir