Góðan daginn 
Ég er að vonast eftir að einhver geti veitt mér upplýsigar sem geta leitt mig áfram með bilaðan Izuzu Trooper árgerð 1999 diesel. 
Einkenni : 
 
* Þegar hann er heitur þá gengur hann ekki lausagang nema í 20 mín, þá drepur hann á sér. 
* Þegar hann er orðinn vel heitur og drepið er  á honum þá fer hann ekki í gang ef það líða ca 20 mín. Þá þarf hann að kólna til að fara aftur í gang.  
* Þegar hann er orðinn vel heitur og drepið á honum og kveikt strax aftur þá er allt í lagi. 
* Það er hægt að draga hann í gang við hvaða aðstæður sem er. 
* Ég er búinn að skipta um olíu og síu, setti á hann þykkari olíu. Og það virtist ekki breyta neinu. 
Með von um einhverjar uppl. 
kv. Hjörtur Númason. Hólmavík.
			
									
									Gangtruflanir í Izuzu Trooper disel 1999
Tengdir notendur
Notendur á þessu spjallborði: Engir skráðir notendur og 1 gestur