Síða 1 af 1

öryggi í trooper springur

Posted: 18.feb 2015, 15:03
frá canon123
góðan dag ætlaði að athuga að eg er með trooper 2001 árgerð sjálfskiptur disel kom fyrir 17.02.15 að ég ætlaði að taka hann úr fjórhjóladrifinu (ýtt á takka til þess) og þá blikkar ljós í mælaborðinu og við það er ég að koma upp á hraðarhindrun að þá drepur bílinn á sér og við það sprakk öryggi sem er i boxinu vinstra megin í horninu niður við gólfið öryggið er nr. c-14 þetta er 15 ampera öryggi og þar stendur STOP A/T cont og alltaf þegar ég set nýtt öryggi og starta að þá springur það veit einhver ráð eða hefur einhver lent í þessu ???????? (ég er búinn að gera aflestur með tölvu en það finnst ekkert error)

Re: öryggi í trooper springur

Posted: 18.feb 2015, 15:39
frá baldur
Ef hann sprengir öryggi við að fara yfir hraðahindrun er nánast öruggt að það er einhver vír búinn að nuddast í sundur.

Re: öryggi í trooper springur

Posted: 18.feb 2015, 20:15
frá Steinmar
Það gæti hugsast að krafturinn í bremsuljósin leiði til jarðar, þessi lýsing passar við það. Er bíllinn með krók og kerrutengi ? Ef svo er gæti skýringin fundist þar.

Kv. Steinmar

Re: öryggi í trooper springur

Posted: 18.feb 2015, 21:41
frá Bílakall
Bremsuljós og eđa tengin sem eru fyrir afturljósin. Þau eru stađsett undir stuđarahorninu v/m.

Re: öryggi í trooper springur

Posted: 19.feb 2015, 22:40
frá canon123
ja ok takk fyrir ábendingar