Síða 1 af 1
					
				Isuzu D-Max
				Posted: 31.jan 2015, 12:24
				frá skuggi19
				eruði með einhverjar upplýsingar um þessa bíla enginn frumskógur af umræðum um þá hérna á klakanum. Eins og t.d. Eyðslu, bilanatíðni og hvort það sé hægt að fá svona sérhluti annarstaðar en í umboðinu ?
mbk Ingi R.
			 
			
					
				Re: Isuzu D-Max
				Posted: 02.feb 2015, 21:40
				frá elli rmr
				minn fer niðrí 8 á hundraði í langkeyrslu og með því að vanda sig mikið :-)  en meðaltalið í langkeyrslu hjá mér er um 10 svo er hann með svona 12-13 innanbæjar á Selfossi hef séð hann fara mest uppí 15,5 en þá var ég með yfirbygða 2 sleða kerru á leiðini frá selfossi og uppí sigöldu í þungu færi og svo til baka. það sem fer helst í þessum bílum er EGR ventill, comonrail þrístingsventill, og þéttiskinnurnar undir spíssunum ég er á sjálfskiptum 2007 bíl sem er með stærri vélini sem sagt comon rail og 164 hp og er bíllinn óbreyttur
			 
			
					
				Re: Isuzu D-Max
				Posted: 03.feb 2015, 01:31
				frá Freyr
				Hafa staðið sig mjög vel, sáralítið um bilanir annað en hefðbundið viðhald og eru eyðslugrannir.
			 
			
					
				Re: Isuzu D-Max
				Posted: 04.feb 2015, 15:44
				frá skuggi19
				Ok takk fyrir svörin. En með þessa þrýstiventla  Elli veistu cirka með verð á þessu og er þetta bara fáanlegt í umboðinu og hvernig er að skipta um þetta ? Er D maxinn mýkri en hilux ?
			 
			
					
				Re: Isuzu D-Max
				Posted: 04.feb 2015, 17:50
				frá Freyr
				Minnir að ventillinn kosti nokkra tugi þúsunda. Það er ágætt að komast að honum, gert gegnum hjólaskálina vm. fr.
			 
			
					
				Re: Isuzu D-Max
				Posted: 07.feb 2015, 11:15
				frá elli rmr
				ekki fanst mér hann svo dýr þegar ég þurfti að kaupa hann sennilega eithvað um 15 Þ. en ég man ekki nákvæmlega hvað hann kostaði en eins of Freyr bendir á er lítið mál að skipta um hann í gagnum vinstri hjólskálina eftir að dekkið er farið :-)
			 
			
					
				Re: Isuzu D-Max
				Posted: 12.feb 2015, 17:58
				frá skuggi19
				ok takk fyrir svörin.