Hyundai Terracan dísil m. CRD, reynsla?
Posted: 29.sep 2014, 16:43
Hafa menn hér einhverja reynslu af Terracan dísil með crd-búnaðnum? Sé að hann kemur 2004/05 og þá eykst aflið úr 150 í 165 hestöfl en hvernig er sú vél að koma út í eyðslu og endingu og svona almennt í viðhaldi? Á götu virka þeir ansi miklir jálkar, eru aksturseiginleikarnir eftir því; hvernig millikassi, hefðbundinn eða sídrif? Gaman væri að sjá hvað menn hafa að segja um þetta. Átti áður Terrano 2,7Tdi '97 og ætlaði aldeilis ekki að fara útí díseljeppa aftur en er heldur að linast í þeirri afstöðu... því er ég farinn að skoða ýmislegt..
Kv.
Þorvaldur.
Kv.
Þorvaldur.