Síða 1 af 1

Hyundai Terracan dísil m. CRD, reynsla?

Posted: 29.sep 2014, 16:43
frá thor_man
Hafa menn hér einhverja reynslu af Terracan dísil með crd-búnaðnum? Sé að hann kemur 2004/05 og þá eykst aflið úr 150 í 165 hestöfl en hvernig er sú vél að koma út í eyðslu og endingu og svona almennt í viðhaldi? Á götu virka þeir ansi miklir jálkar, eru aksturseiginleikarnir eftir því; hvernig millikassi, hefðbundinn eða sídrif? Gaman væri að sjá hvað menn hafa að segja um þetta. Átti áður Terrano 2,7Tdi '97 og ætlaði aldeilis ekki að fara útí díseljeppa aftur en er heldur að linast í þeirri afstöðu... því er ég farinn að skoða ýmislegt..

Kv.
Þorvaldur.

Re: Hyundai Terracan dísil m. CRD, reynsla?

Posted: 29.sep 2014, 18:59
frá fridfinnur
Átti einn 2007 að mig minnir. 35" AT breyting. Eyðsla 9.6 Ágætis bíll, bilaði lítið í minni eigu allavega. Ekkert sérlega ánægður með hann á malbiki rásaði mikið en á möl var hann fínn. Sídrif ekki spennandi drifbúnaður og þurfti að fara varlega með að skipta í lága drifið eitthvað rafmagnsdót. En fínn bíll fannst mér á heildina litið.

Re: Hyundai Terracan dísil m. CRD, reynsla?

Posted: 30.sep 2014, 00:02
frá thor_man
.