Síða 1 af 1

Besti jeppi í heimi.

Posted: 11.feb 2010, 00:33
frá olistef
Allir vita að gamli bronco er besti bíll mannkynssögunar.
Hér er minn að leika sér hjá Jaka.
mars april 2009 074.jpg


Við bræður á jökli í fyrra.
mars april 2009 035.jpg

mars april 2009 051.jpg


Hittum þennan svarta á Kaldadal í fyrra og stiltum samstundis upp fyrir myndatöku
mars april 2009 085.jpg


Kveðja Óli

Re: Besti jeppi í heimi.

Posted: 11.feb 2010, 01:15
frá Jens Líndal
Ég er sammála þér með að Bronco sé besti jeppinn eeeeeeeeeeeeen mér fynnst líka Gamli Range Roverinn jafn góður og Broncoinn svo ég á bara báða bílana :) Broncoinn er algerlega original fyrir utan lakk, frambretti og áklæði á sætum. Já þetta er 66 árgerð af Bronco og samkvæmt fyrri eiganda þá var þessi bíll í fyrstu sendingu sem kom af Bronco til landsins.

Image

Re: Besti jeppi í heimi.

Posted: 11.feb 2010, 01:20
frá jeepson
Jens Líndal wrote:Ég er sammála þér með að Bronco sé besti jeppinn eeeeeeeeeeeeen mér fynnst líka Gamli Range Roverinn jafn góður og Broncoinn svo ég á bara báða bílana :) Broncoinn er algerlega original fyrir utan lakk, frambretti og áklæði á sætum. Já þetta er 66 árgerð af Bronco og samkvæmt fyrri eiganda þá var þessi bíll í fyrstu sendingu sem kom af Bronco til landsins.

Image


Þú mátt alveg láta mig vita ef að þú verður einhverntíman leiður á honum og vilt losna við hann :D

Re: Besti jeppi í heimi.

Posted: 11.feb 2010, 01:44
frá Fordinn
Klárlega skemmtilegasti jeppi fyrri áranna....... og seinni!!! eina sem mer finnst vanta her á bilana að ofan eru stærri dekk =) sé enn eftir og naga á mér handarbökin fyrir að hafa selt 77 broncoinn sem eg átti

Re: Besti jeppi í heimi.

Posted: 11.feb 2010, 11:37
frá JHG
Helvíti töff og skemmtilegir jeppar. Á sjálfur gamlan jeppa (reyndar annan nýjan líka) sem er Chevy Blazer K5 og ég get því enganveginn samþykkt að þetta sé besti jeppinn ;)

Re: Besti jeppi í heimi.

Posted: 11.feb 2010, 11:45
frá olistef
Já já. það verða trúlega alltaf fleiri en ein jeppategund "best í heimi". Það er nú það skemtilega við þetta.

Re: Besti jeppi í heimi.

Posted: 26.apr 2012, 01:22
frá valdi.alla
Óli þennann á ég, árg.´73 351W 44" fljótandi hásing aftan, stýristjakkur, kraftbremsur, loftlæsingar fr. aft., diskabremsur hringinn, gormar hringinn, BROSI hringinn. Hjörleifur bróðir þinn þekkir til þessa bíls.

Re: Besti jeppi í heimi.

Posted: 26.apr 2012, 05:54
frá joisnaer
valdi.alla wrote:Óli þennann á ég, árg.´73 351W 44" fljótandi hásing aftan, stýristjakkur, kraftbremsur, loftlæsingar fr. aft., diskabremsur hringinn, gormar hringinn, BROSI hringinn. Hjörleifur bróðir þinn þekkir til þessa bíls.


það var gríðarlega falleg sjón að sjá þennann í þorrablótsferðinni í vetur :) án efa fallegasti bíllinn sem var í þeim túr

Re: Besti jeppi í heimi.

Posted: 26.apr 2012, 09:44
frá 66 Bronco
Sæl öll.

Bíllinn hans Óla Stef er núna í allverulegri yfirhalningu. Grindin stendur núna tilbúin, galvaniseruð og svartmáluð með öllu nýju í hásingum, einnig svartmáluðum, ryðfríu bremsukerfi og nú er næsta mál að mála og ganga frá vél og skiptingu á nýjan leik. Erum svo með stráheila skúffu sem á að fara ofan á eftir málun og yfirferð.

Verður skuggalegur, held að hann sé með þráð um endurgerðina hér einhversstaðar.

Kveðja, Hjörleifur.

Re: Besti jeppi í heimi.

Posted: 26.apr 2012, 12:36
frá Dodge
Ansi margir mundu setja Willys/Wrangler í fyrsta sætið er ég hræddur um.

Ég var ekki þeirrar skoðunar en þegar ég var búinn að eiga wrangler í viku þá var það skothelt.

Re: Besti jeppi í heimi.

Posted: 26.apr 2012, 12:40
frá Gunnar
já fyrsta sætið er löngu upptekið fyrir willys/wrangler;)

Re: Besti jeppi í heimi.

Posted: 26.apr 2012, 12:44
frá 66 Bronco
Já, það er oft þannig þar til menn gera sér grein fyrir yfirburðum gamla Bronco..

Æ, er er ekki hver fugl fegurstur í auga eigandans..

Hjölli.

þegar líterinn kostaði 127 kr

Posted: 28.apr 2012, 17:16
frá Logi
[imghttps://www.facebook.com/photo.php?fbid=1718361007755&set=t.1500155537&type=1&theater][/img]

Re: Besti jeppi í heimi.

Posted: 20.mar 2013, 01:32
frá Valdi Alla
valdi.alla wrote:Óli þennann á ég, árg.´73 351W 44" fljótandi hásing aftan, stýristjakkur, kraftbremsur, loftlæsingar fr. aft., diskabremsur hringinn, gormar hringinn, BROSI hringinn. Hjörleifur bróðir þinn þekkir til þessa bíls.

Núna er komin AOD olíuskifting í stað GM tannhjólahraðabreytikassa og nýr og sterkari millikassi, vantar bara að setja í hann nýju beinu innspýtinguna sem bíður óþreyjufull eftir því að setjast í sæti Holley blöndungsins.

Re: Besti jeppi í heimi.

Posted: 20.mar 2013, 13:48
frá hjalz
bronco er klárlega langflottasti bíllinn ! Bróðir minn á 66 módel uphækkaður á 38 og djöfull öfunda ég hann !!

Re: Besti jeppi í heimi.

Posted: 20.mar 2013, 19:33
frá Valdi Alla
hjalz wrote:bronco er klárlega langflottasti bíllinn ! Bróðir minn á 66 módel uphækkaður á 38 og djöfull öfunda ég hann !!

Ekki öfunda hann, samgleðstu honum og vertu ánægður að það sé a.m.k. einn Bronco í fjölskyldunni. Þú verður að stefna að því að fjölga þeim.

Re: Besti jeppi í heimi.

Posted: 20.mar 2013, 21:18
frá olistef
Sæll Valdi Alla.
Þessi bíll hjá þér er rosalegur. Ég held að þeir verði varla mikið betri.
Kveðja Óli

Re: Besti jeppi í heimi.

Posted: 20.mar 2013, 21:23
frá 66 Bronco
Óli, ekki hvetja Valda, þá fer hann í 54" áður en Unnur (frúin hans) nær að depla auga..
Jú annars..
Áfram Valdi!
Óli, settu inn myndir úr skúrnum handa okkur.

Hjörleifur

Re: Besti jeppi í heimi.

Posted: 20.mar 2013, 23:27
frá hjalz
ég samgleðst honum og er mjög feginn, en sjálfur á ég ford explorer 38 breyttan og er ekkert að hata það neitt

Re: Besti jeppi í heimi.

Posted: 21.mar 2013, 01:42
frá Valdi Alla
66 Bronco wrote:Óli, ekki hvetja Valda, þá fer hann í 54" áður en Unnur (frúin hans) nær að depla auga..
Jú annars..
Áfram Valdi!
Óli, settu inn myndir úr skúrnum handa okkur.

Hjörleifur

Líst vel á að fá myndir úr skúringum hjá Óla.
Ford er Lord.

Re: Besti jeppi í heimi.

Posted: 05.jan 2014, 00:53
frá Valdi Alla
Valdi Alla wrote:
valdi.alla wrote:Óli þennann á ég, árg.´73 351W 44" fljótandi hásing aftan, stýristjakkur, kraftbremsur, loftlæsingar fr. aft., diskabremsur hringinn, gormar hringinn, BROSI hringinn. Hjörleifur bróðir þinn þekkir til þessa bíls.

Núna er komin AOD olíuskifting í stað GM tannhjólahraðabreytikassa og nýr og sterkari millikassi, vantar bara að setja í hann nýju beinu innspýtinguna sem bíður óþreyjufull eftir því að setjast í sæti Holley blöndungsins.

Settur var 242 millikassi aftaná sjálfskiftinguna, það var ekki að gera sig, alltaf einhverjir smellir og læti. 242 skift út fyrir 205 millikassa.

Re: Besti jeppi í heimi.

Posted: 02.okt 2014, 08:21
frá Valdi B
jæja hafið þið ekki eitthverjar nýjar sögur og myndir um broncoa hjá ykkur ? hvernig gengur í skúrnum ? hverju á að breyta fyrir veturinn ?

ég er að byrja að gera upp einn 74 módel, lítið ryðguð skúffa, grind,hásingar,stífur,gormar,stýrisgangur allt sandblásið og málað svart, allt nýtt í hásingum og bremsum líka. ætla að hafa hann á 35" en hafa möguleikann á að smella 38" undir á veturna. verður málaður svartur.

kem með myndir þegar ég man eftir að taka þær :)

Re: Besti jeppi í heimi.

Posted: 02.okt 2014, 09:04
frá jeepcj7
Þar sem gamli er ekki mikið á netinu verð ég að smella inn fréttum af græjunni hans sem er 76 model með complett plastboddý.
Í sumar var komið að skoðun og sá gamli fór að viðra og liðka tækið en það endaði með því að jeppinn stóð í ljósum logum eftir að bensínslanga við innspítinguna gaf sig,hann náði sem betur fer að slökkva flótt og örugglega í og við settum bara gamla Carter torinn í aftur.En í hvert skipti sem var gangsett kom nýtt gat á flækjurnar þær voru alveg búnar þannig að í hann voru pantaðar nýjar geggjað flottar ryðfríar flækjur þeim smellt í og sóttur skoðunarmiði í 2 ár án athugasemda.
Nú stendur til að klára pústið aftur úr með ryðfríu og jafnvel að setja fljótandi öxla að aftan í 9".
http://shop.broncograveyard.com/Stainle ... nfo/10009/

Re: Besti jeppi í heimi.

Posted: 02.okt 2014, 09:47
frá Bubbi byggir
Er ekki um að gera að setja inn mynd af gripnum,,aldrei of mikið af þeim :)

Re: Besti jeppi í heimi.

Posted: 02.okt 2014, 09:53
frá Bubbi byggir
Eins og spjallverjar hafa orðið varir við er þessi í vinslu hjá mér. Nú er draumurinn að setja hann á götunafyrir veturinn. Vonandi gengur eins vel með þennan í skoðunn.
20140921_212421.jpg
20140921_212421.jpg (116.61 KiB) Viewed 28179 times

Re: Besti jeppi í heimi.

Posted: 02.okt 2014, 14:11
frá jeepcj7
Þetta er græjan sem ég var að tala um.

Re: Besti jeppi í heimi.

Posted: 02.okt 2014, 20:02
frá Bubbi byggir
Þetta eru flottustu bílarnir :)

Re: Besti jeppi í heimi.

Posted: 06.okt 2014, 08:21
frá Valdi B
svaka flottir báðir þessir hér fyrir ofan (eins og allir broncoar)

ég er einmitt búinn að vera að spá að kaupa sömu flækjur og þið voruð að kaupa í plastbroncoinn hjá ykkur frá broncograveyard. er búinn að setja saman smá lista með dóti sem ég panta hjá þeim í vetur þegar ég fer að vinna í boddýinu á mínum 74.

kem með myndir þá :)

Re: Besti jeppi í heimi.

Posted: 08.okt 2014, 03:25
frá lecter
jeep allt annað er eftirliking sá ég auglýst ,,,,,

Re: Besti jeppi í heimi.

Posted: 08.okt 2014, 16:01
frá Valdi B
þú átt líka bara jeep, veist bara ekki betur......

Re: Besti jeppi í heimi.

Posted: 08.okt 2014, 16:12
frá jeepcj7
Flækjurnar sem við keyptum líta ekki út eins og myndin sýnir á myndinni eru tri Y flækjur en þær sem við fengum eru venjulegar 4 in 1 flækjur sem er bara allt í fína og lagið á þeim er miklu betra en á gömlu flækjunum,þar sem hægri flækjan fer öll yfir og aftur fyrir startara og mótor púða.
Það er meira að segja hægt að skipta um startara núna án þess að taka flækjuna frá. ;o)

Re: Besti jeppi í heimi.

Posted: 08.okt 2014, 18:59
frá Bubbi byggir
Hafið þið einhverja hugmynd um það hvað það eru til margir Broncoar (gamla gerðin) á bifreiðaskrá??? það væri gaman að vita það, Maður sér þá ekki svo mikið á ferðinni um götur landsins.

Re: Besti jeppi í heimi.

Posted: 08.okt 2014, 21:31
frá beygla
billin sem eg rúnta á

Re: Besti jeppi í heimi.

Posted: 08.okt 2014, 22:38
frá Kiddi
Þetta kemur ekki heim og saman. Bronnkó er að sjálfsögðu besti Ford í heimi, en Jeppi er hann ekki!

Re: Besti jeppi í heimi.

Posted: 09.okt 2014, 10:09
frá Bskati
Kiddi wrote:Þetta kemur ekki heim og saman. Bronnkó er að sjálfsögðu besti Ford í heimi, en Jeppi er hann ekki!


alveg rett Kiddi, eg er nokkud viss um ad SJ413 se besti jeppi i heimi

Re: Besti jeppi í heimi.

Posted: 09.okt 2014, 12:01
frá Bubbi byggir
Er einhver minnimáttarkend í gangi;; góð lækning við því er að fá sér Bronco og brosa framan í heiminn :)

Re: Besti jeppi í heimi.

Posted: 09.okt 2014, 13:46
frá MixMaster2000
Það ættu allir að eiga minnstakosti einn.

Re: Besti jeppi í heimi.

Posted: 09.okt 2014, 13:56
frá MixMaster2000
Bubbi byggir wrote:Hafið þið einhverja hugmynd um það hvað það eru til margir Broncoar (gamla gerðin) á bifreiðaskrá??? það væri gaman að vita það, Maður sér þá ekki svo mikið á ferðinni um götur landsins.


Þetta er heimilisjeppin á mínu heimili. Hann er mikið notaður, bæði á fjöll og daglegum akstri.